Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1964, Page 10

Ægir - 15.12.1964, Page 10
396 Æ GIR hvalir fengust á bát, bæði í veiði Norð- manna og síðar. Eins og fyrr segir jókst aflinn nokkuð vegna tilfærslu á hin nýju veiðisvæði við Austurland. Eftir það fer að halla undan fæti; þó jókst veiðin nokkuð á árunum 1907—1909 vegna fjölgunar bátanna, en endalokin urðu samt ekki umflúin. Árið 1912 stund- uðu enn 20 bátar veiðarnar, en aflinn á bát var þá kominn niður í 8 hvali, miðað við 19 hvali árið áður og 43 hvali árið 1902. Samtímis þessu virðast menn láta sér nægja „óæðri“ tegundir, sem m.a. kemur fram í því, að um aldamótin fékkst 41 lýsistunna úr hverjum hval að meðaltali, en seinasta árið, sem veiðarnar voru stundaðar, fengust einungis 32 tunn- ur úr hval að jafnaði. Það er greinilegt að árin 1910, 1911 og 1912 marka tímamót í sögu veiðanna. Ár- ið 1910 féll veiðin niður í 20 hvali á bát miðað við 32 hvali árið áður. Árið 1911 fækkaði bátum hinsvegar niður í 22 mið- að við 32 árið á undan og tókst því að halda líkum afla á bát, eða 19 hvölum. Vonuðu menn því að fækkun bátanna myndi stemma stigu við frekari rýrnun stofnsins og þraukuðu áfram, því árið 1912 stunduðu ennþá 20 bátar veiðarnar, en það ár féll heildaraflinn niður í 152 hvali úr 428 árið áður og varð veiðin að- ins 8 hvalir á bát. Það var nú orðið ein- sætt um endalokin. Alþingi setti lög er bannaði allar hval- veiðar á íslandi eftir árið 1915, en veið- arnar hefðu sennilega hætt af sjálfu sér, því þær voru orðnar óarðbærar. Ég held að hvalveiðar Norðmanna við ísland séu eitt skýrasta dæmi um rán- yrkju á Íslandsmiðum sem við þekkjum, en því miður eru hin líffræðilegu gögn af það skornum skammti að frekari bolla- leggingar og útreikningar em vafasamir. Árið 1935 hófust hvalveiðar aftur hér við land og var hvalstöðin staðsett í Tálknafirði. Veiðarnar stunduðu 2—3 bátar og var þeim haldið áfram til ársins 1. mynd. Heildarhvalveiöin viö ísland á ár- unum 1883—1964.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.