Ægir - 15.12.1964, Side 55
441
ÆGIR
ar inn í barkaendann. Síldinni er hleypt
út úr sogleiðslunni fyrir framan lofttæmi-
dæluna með sérstökum skiptiventli (ex-
changer). Hann er í sex hólfum, og snýst
um 12 snúninga á mínútu. Aðalhlutar
tækjanna eru því sogbarkar, skiptiventill
og lofttæmidæla og fara afköstin eftir
hæðinni, sem dæla þarf, lengd barkanna
og gerð og stærð lofttæmidælunnar, þ.e.
hversu mikilli loftþynningu hún nær. —
Gera verður kröfur til loftþynningar, sem
nemur 15 til 25 þumlungum kvikasilfurs,
eða nálega 50 til 75% loftþynningar eftir
því, hversu hátt og langt þarf að dæla.
Við snúning ventilsins flytzt þynningin
yfir á sogbarkahlið hans og leitar þá
síldin inn í barkana og upp í skiptiventil-
inn, en við snúninginn tæmast hólfin aft-
ur af síld og gleypa loft.
Mest afköst nást, ef um 20% af vatni
er látið renna með síldinni, en jafnan er
auk þess nokkuð loft á ferðinni. Vatnið
og loftið hríslast um síldina, sem við það
leggst í straumstefnuna og veitir þá til-
tölulega lítið viðnám. Vatnið hjálpar auk
þess til að örva rennsli síldarinnar að
stútnum, en er ekki nauðsynlegt við dæl-
inguna.
Úr skiptiventlinum fellur síldin á
vatnsskilju, þar sem vatnið hripar af
henni. Áreynsla á fiskinn er mjög lítil við
notkun þessarar aðferðar, enda kom það í
ljós við tilraunirnar, að skemmdir á síld-
inni við losun úr fiskiskipunum voru
sáralitlar, ef frá er talið smávægilegt
hreisturstap.
Ókostir við þessa aðferð, eins og við
aðrar undirþrýstingsaðferðir, eru að lyfti-
hæðin og vegalengdin, sem hægt er að
flytja síldina, eru takmarkaðar, auk þess
sem dælan þrýstir ekkert frá sér.
IV. ÁkvörSun um tilrannir, og búnaSur
m.s. Þyrils.
Þegar síld er mikil og almenn, er það
fyrst og fremst burðarmagn veiðiskip-
anna, sem takmarkar afköstin. Flutninga-
skip, sem tekur síldina á miðunum, getur
þá stóraukið það aflamagn, sem að landi
berst. Hagur fiskiskipa fer að miklu leyti
eftir því, hversu miklar líkur eru fyrir
því, að afli fáist á því tímabili, sem færi
2. mynd.
TækjaútbúnatSur á þil
fari.