Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1964, Page 56

Ægir - 15.12.1964, Page 56
442 Æ GIR í það að sigla með aflann í land, bíða löndunar og komast á miðin aftur. Oftast nemur þetta a.m.k. einum eða tveimur sólarhringum. Ýmsar athuganir voru gerðar á hag- rænum möguleikum til reksturs slíks síld- arflutningaskips. Vegna óvissu um veður og veiði er ekki fyrirfram hægt að reikna kostnað á einingu með neinni nákvæmni. Möguleikarnir á rekstri slíks skips virt- ust hinsvegar vera fyrir hendi og því var sú ákvörðun tekin að tilraun skyldi gerð. Sótt var um heimild Verðlagsráðs sjávar- útvegsins til að fá að kaupa síldina á miðunum á lægra verði en greitt yrði fyr- ir síld landaðri í höfn. Verðlagsráð dró svarið á langinn, en synjaði eftir að bræðslusíldarverðið hafði verið ákveðið. Ákvörðun verðlagsráðs teljum við ranga. Til þess að koma hugmyndinni í fram- kvæmd, var leitað eftir aðstoð sjávarút- vegsmálaráðuneytisins, að það ráðstafaði olíuflutningaskipinu Þyrli til tilrauna í þessu skyni. — Sjávarútvegsmálaráðherra leitaði álits fiskimálastjóra og er okkur ljúft og skilt að geta þess, að hinar já- kvæðu undirtektir þessara aðila gerðu til- raunirnar að veruleika. Fiskimálasjóður veitti styrk til tækja- kaupa og var sú aðstoð virkur þáttur í því, að tilraunin varð framkvæmd á s.l. sumri. Við breytingar á skipi og fyrirkomu- lagi tækja nutum við aðstoðar Einars Guðmundssonar, verkfræðings. Vakuumdælu þá, sem notuð var, feng- um við að láni hjá Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjunni h.f., Kletti. Kunnum við Jónasi Jónssyni framkvæmdastjóra beztu þakkir fyrir. Til þess að komast af með sem minnst- ar breytingar á skipinu, var ákveðið: 1. Að fjarlægja aðra farmdælu skipsins og reimtengja vakuumdæluna beint við hjálparvél. 2. Að koma „Vacu-Lift“ og vatnsskilju fyrir á turni svo háum, að hægt væri að koma fyrir flutningasnigli yfir tankopum, sem á Þyrli eru rúmlega meters há. 3. Að útbúa snigilinn þannig með vökva- drifi, að hægt væri að snúa honum þvert á skipið við löndun. Undirbúningstími var stuttur og ýmis- legt varð til þess að draga framgang málsins á langinn (Sjá mynd 2). V. Feröir Þyrils. Að undirbúningi loknum var haldið til Seyðisfjarðar, þar sem fyrsta lestun fór fram hinn 5. ágúst úr Höfrungi III, AK 250, sem reyndist vera með 1735 mál, er losuð voru á 7 klst. með einnar stundar töfum við lagfæringar. Næsta dag var lestað úr sjö öðrum skipum, en síðustu 250 málin voru tekin StutSlarit X

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.