Ægir - 15.12.1964, Qupperneq 57
ÆGIR
úr m.s. Hafrúnu IS 400 á Þistilfirði á leið
til Bolungavíkur 7. ágúst. Hafrún var þá
að ljúka 200 mílna leið til Raufarhafnar.
Þyrill var nú talinn fullfermdur með
6075 mál, og ferðinni haldið áfram til
Bolungavíkur, og komið þangað að
kvöldi, laugardaginn 8. ágúst.
Löndun gat hafizt fljótlega og gekkall-
vel í fyrstu — komst upp í 400 mál á
klst. en mjög seinlegt var að ná síðustu
dreggjunum upp úr tankabotnunum, sem
eru lagðir með gufupípum yfir þéttum
botnbitum.
Þegar Þyrill kom á miðin í annarri
ferðinni, var komin bræla og fengust þá
á fyrsta degi aðeins um 2000 mál, sem
farið var með til Bolungavíkur eftir 6
daga bið, þegar sýnt var að ótíð myndi
haldast.
1 þriðju ferðinni fylgdi Þyrill flotanum
út eftir langvarandi ótíð. Lestun fór fram
um 80 mílur austur af Langanesi og var
dælt í skipið á 23 klst. Öll skipin, sem los-
uðu í Þyril að þessu sinni, fengu sam-
dægurs síld aftur.
f fjórðu og síðustu ferðinni var megnið
af síldinni tekið um 30 mílur austur af
Dalatanga. Veður var óhagstætt og fór
versnandi, svo að halda varð upp í mynni
Seyðisfjarðar til þess að losa þar tvö síð-
ustu skipin. Veður var áður orðið svo
slæmt, að farið var að gefa yfir framstafn
Þyrils.
VI. Árangur tilraunamva.
Auk undirbúningstíma tóku tilraunirn-
ar alls 46 daga, sem flokka má á eftirfar-
andi hátt.
19 daga var legið vegna veðurtafa.
11 dagar fóru í siglingar.
10 dagar fóru í löndun.
6 daga var unnið við lestun.
Alls voru flutt 20.000 mál á þessu tíma-
bili.
Ef áætlaður kostnaður við rekstur skips
og tækja væri krónur 25.000 pr. dag,
væri meðalflutningskostnaður pr. mál,
46 x 25.000
Kr.
20.000
= Kr. 57.50.
Þessi tala samsvarar 31 % af innkaups-
verði síldarinnar s.l. sumar.
Hér ber að hafa í huga, að um frum-
tilraun var að ræða, sem eftir er að end-
urbæta og því hefur farið meiri tími í
flutningana af þeim ástæðum en fara mun,
þegar reynslan verður meiri. Einkum
var löndunartíminn óeðlilega mikill, en
það má auðveldlega bæta með betri út-
búnaði, svo sem sléttum botni, sbr. áður-
nefndar gufupípur. í öðru lagi voru veð-
urtafir sennilega óeðlilega miklar (Sjá
stuðlarit 2) og í þriðja lagi er ganghraði
og burðarmagn skipsins tiltölulega lítið.
Helmingi stærra skip, sem kostaði þá
sennilega um 35.000 krónur á dag, gæti
á jafnlöngum tíma flutt 40.000 mál.Kostn-
aður pr. mál yrði þá == Kr. 40.35
Stu'ölarit II
-/9 se/?Á /964.