Ægir - 15.01.1965, Blaðsíða 19
ÆGIR
13
REGLUGERÐ UM FERSKFISKEFTIRLIT
Hinn 9. desember 1964 gaf sjávarútvegsmála-
ráðuneytið út breytingar á 23. og 24. gr. reglu-
gerðar um ferskfiskeftirlit. Þar sem um mikil-
vægar breytingar er að ræða er öll reglugerðin
birt hér á eftir.
I. KAFLI
Búnaður fiskiskipa.
1. gr.
Alla innviði í lestum fiskiskipa skal mála eða
lakkbera fyrir hverja vetrarvertíð og einnig áður
en sumarveiðar hefjast. Sé ástæða til, geta eftir-
litsmenn krafizt, að lestar séu málaðar oftar.
Aður en lestar eru málaðar, skal þess gætt,
að innviðir þeirra séu hreinir og vel þurrir, laus-
ir við slagvatnsskemmdir, súr eða ýldu eða aðrar
skemmdir.
2. gr.
Afturþil og framþil lesta skulu vera þétt og
vel einangruð til þess að koma í veg fyrir hitun
frá íbúðum skipshafnar eða vélarúmi.
3. gr.
Fiskiskip, sem hafa dýpri lest en 125 cm mælt
frá lestargólfi að þilfarsbita, skulu hafa hillur.
Bil á milli hillna í fiskstíum skulu vera sem
hér segir:
Frá botni að neðstu hillu ekki meira en 125 cm
í bátum, en 90 cm í botnvörpuskipum. Milli hillna
ekki meira en 45 cm bæði í bátum og botnvörpu-
skipum. Eftirlitsmenn geta í samráði við for-
stöðumann Ferskfiskeftirlitsins, veitt bátum, sem
hafa 200—225 cm djúpa lest, undanþágu frá að
hafa tvær hillur.
1 miðlest báta skulu hillur vera það margar,
að bilið frá botni að neðstu hillu og milli hillna
verði ekki meira en 80 cm.
1 botnvörpuskipum skulu samsvarandi bil í neðri
miðlest (,,undirsteis“) ekki vera meiri en 90 cm.
Þó má veita undanþágu frá þessu ákvæði, ef sér-
staklega stendur á.
Fiskiskip, sem stunda síldveiðar, skulu hafa
a. m. k. eina hillu í stíu.
4. gr.
Ef lestarborð fiskiskipa eru úr tré, er skylt að
hafa tvo ganga af borðum, og ber að skipta um
eftir þörfum.
5. gr.
Skylt er að hafa síuútbúnað í gólfi, þannig að
blóðvatn geti runnið óhindrað niður í kjalsog
skipsins.
Ef skip þarf að hafa lausa kjölfestu í fisklest,
skal nota til þess salt eða annað, sem að dómi
eftirlitsmanna er jafngott.
6. gr.
Góð loftræsting skal vera í fisklest, þar má ekki
geyma neitt, sem valdið getur skemmdum á fiski.
7. gr.
Þilfar skal vera þannig, að tryggt sé, að fisk-
ur verði ekki fyrir skemmdum.
Þilfarsstyttur (pollar) og skilrúm á þilfari
skulu vera máluð.
8. gr.
Opnir bátar, svo og bátar, sem hafa fisk á þil-
fari, skulu hafa ábreiður, sem breiða skal yfir
fiskinn til þess að verja hann sólskini, frosti eða
öðrum skaðlegum áhrifum.
9. gr.
Á fiskiskipum er skylt að hafa rennur eða ann-
an útbúnað til þess að verja fisk mari, þegar
hann er látinn í lest.
10. gr.
Sé öllum framangreindum skilyrðum fullnægt,
gefur Ferskfiskeftirlitið út hæfnisvottorð og af-
hendir það eiganda eða skipstjóra hlutaðeigandi
skips. Hæfnisvottorð skal afturkalla, ef lestar
eða annar búnaður fer úr lagi.
II. KAFLI
Löndun afla og flutningur í fiskmóttökuhús.
11. gr.
Löndun afla úr fiskiskipi má aðeins framkvæma
með búnaði, viðurkenndum af Ferskfiskeftirlitinu.
12. gr.
Tæki til fiskflutninga skulu vera hrein og
þannig gerð, að fiskur merjist ekki eða skemm-
ist á annan hátt.
Sé fiskur fluttur milli verstöðva skal ætíð nota
yfirbreiðslur.
Framh. á bls. 17.