Ægir - 15.04.1970, Blaðsíða 11
ÆGIR
109
líkani, sem Englendingar hafa áður búið
til. Líkan Nickersons er aðlagað að togara-
utgerð Kanadamanna og síðan hægt að
stækka það eins og að framan greinir. Að
iýsa líkaninu hér yrði allt of langt mál,
en til að gefa smá nasasjón af því sýnum
við svokallaða straum-mynd úr því, sem
lýsir atvikarás í togveiðum (sjá mynd 1).
1 þessu sambandi má nefna að Fiski-
félag Islands hefur í samvinnu við Reikni-
stofnun Háskólans unnið að hliðstæðu
verkefni á vegum Norðurlands-áætlunar-
innar. Kannaðar hafa verið togara-skýrsl-
Ur okkar frá síðustu árum og þannig reynt
að búa til mynd af veiðimiðum okkar.
Sömuleiðis hefur verið könnuð veiðihæfni
uiismunandi stærða af togurum og rekstr-
nrafkoma þeirra.
Margar aðrar þjóðir hafa búið til hlið-
stæð reikni-líkön fyrir fiskveiðar, en sam-
Mynd 2. Netatromla í enskum togara.
eiginlegt hjá öllum er vöntun á meiri og
nákvæmari upplýsingum um fiskveiðar.
Má því segja að þessar rannsóknir séu enn
Mynd 3. Catamaran „Experiment“.