Ægir

Árgangur

Ægir - 15.04.1970, Blaðsíða 13

Ægir - 15.04.1970, Blaðsíða 13
Æ GIR 111 þ- e. a. s. vélvæða meðhöndlun veiðarfæra °8' fisks. Nefndi hann að tilraunir með neta-tromlur, sem vefja vörpuna upp á sig, tafi g-óðu (sjá mynd 2). Með notkun þeirra ma fækka mönnum á dekki togara og stytta tímana, sem tekur að tæma vörpuna og ef ^otaðar eru tvær vörpur, t. d. botnvarpa °S flotvarpa, má stytta tímann verulega, Sem það tekur að skipta um veiðarfæri. þessa mætti samræma betur notkun Pessara tækja og notkun fiskvinnslutækja, s- s. slægingarvéla, þvottavéla o. fl. Hann lysti því sem skoðun sinni, að skip fram- tíðarinnar yrðu mönnuð færri en betur Pjálfuðum og betur launuðum mönnum og því reyndu þeir að finna upp ný tæki, end- ui’bæta eldri tæki og samræma notkun þeirra til að flýta þessari þróun. Yury Kadilnikof f, yf irverkfræðingur ujá rússnesku Atlantshafs-fiskveiðirann- sóknardeildinni, lýsti tilraun, sem Rússar eru að gera með 950 tonna „Catamaran" Þetta skip, sem sýnt er á mynd 3, er bæði ætlað til togveiða og snurpinótarveiða. Það er í raun og veru tveir CRT—300 rekneta- skipabolir, sem tengdir eru með stórri brú og sterkri tengi-yfirbyggingu. Skipið, sem heitir „Experiment" (þ. e. a. s. Tilraun), er 40 m langt og 19 m. breitt. Með 300 hestafla vél í hvorum bol kemst skipið á um 9 sjómílna hraða. Áhöfn er 33 menn og úthaldsþol um 27 dagar. Áhöfn og smiðir skipsins eru mjög ánægðir með árangur þann, sem náðst hef- ur. Má nefna sérstaklega mikla sjóhæfni skipsins og þægindi við að skipta yfir milli mismunandi veiðiaðferða, svo sem frá botnvörpu yfir í snurpinót eða öfugt. Þar sem skipið hefur tvær skutrennur er hægt að veiða með tveimur botnvörpum á víxl. Mig grunar samt að skipið sé nokkuð dýrt í byggingu og rekstri.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.