Ægir

Årgang

Ægir - 15.04.1970, Side 12

Ægir - 15.04.1970, Side 12
110 ÆGIR á byrjunarstigi, en nauðsynlegt að halda þeim áfram. M. Hatfield, vélaverkfræðingur frá Iðn- þróunardeildinni í Hull, lýsti mjög djarfri tilraun, sem Englendingar eru nú að gera. Eru þeir að setja tölvu-vélavakt í stóran enskan frystitogara. Togarinn heitir St. Jasper og er frú Hamling í Hull. Tölvan, sem er byggð af English Electric Company, á ekki aðeins að stjórna vélum skipsins og halda véladagbók, hún á líka að fram- kvæma ákveðin dagleg störf vélstjórans og grípa inn og leiðrétta bilanir hraðar en vélstjóri getur gert. Má t. d. nefna að dæla á milli olíu og vatni, lenza skipið, setja í gang varavélar og stöðva bilaðar vélar. Auk alls þessa hefur tölvan viðbótar-mögu- leika, sem taka má í notkun síðar. Má þar nefna að aðstoða við stjórn skipsins og fiskileit, vinna úr upplýsingum og hjálpa skipstjóranum við ákveðnar ákvarðanir, eins og t. d. val á fiskimiðum, hvort halda skuli áfram veiði, eða flytja sig á önnur veiðimið, hvaða leið skuli sigla og hvar skuli landa. Að vísu ætlum við ekki að smíða slíkt skip í næstu framtíð, en við ætlum að smíða nýja togara með nokkurri sjálf- virkni og vélavakt nú á næstunni. Það er því ekki vanzalaust hvað við gerum lítið til að undirbúa okkar menn til að taka við þeim og reka þau. Á það aðallega við um vélstjórana, þar sem þeirra undirbún- ingur er tímafrekur. Þrátt fyrir mikinn dugnað og framsýni Gunnars Bjarnason- ar skólastjóra Vélskóla Islands, í að afla skólanum kennslutækja, eigum við enn engan kennslubúnað á vélum skólans, til að keyra þær á svipaðan hátt og gert yrði í nýju togurunum tilvonandi. Verðum við því að bregða fljótt við og setja þessi tæki upp í Vélskólanum, þannig að hægt verði að hefja kennslu á þau eins fljótt og auðið er. Nægir ekki að kenna bara nemendum Vélskólans á búnað þennan, heldur verður að bjóða vélstjórum, sem þegar eru komn- ir út í störf, til baka í framhaldsnám við skólann. Dr. N. Kerr, yfirverkfræðingur frá Iðn- þróunardeildinni í Hull, hélt gagnmerkt erindi um vélvæðingu um borð í togurum. Deild hans hefur unnið mjög merkilegt starf meðal annars í að vélvæða togveiðar, FÖTV'IRS-KLEMMA

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.