Ægir

Árgangur

Ægir - 15.04.1970, Síða 14

Ægir - 15.04.1970, Síða 14
112 Æ GIR SKEL OPNUÐ ACETYLENE-SÚR Mynd 7. Tveggja ára skarkoli ræktaður í netagirðingu við Ardtoe í Skotlandi. W. W. Johnson, veiðarfærasérfræðingur frá Iðnþróunardeildinni í Ottawa, lýsti vél- væðingu í samsetningu og viðgerð botn- og flotvarpna. Sýndi hann nokkur af verk- færunum og alls konar klemmur og fest- ingar til að festa saman netahluta og til að festa flot- og fótreipisbúnað við netin. Væri athyglisvert að reyna þessa hluti hér (sjá mynd 4). Hann hefur endurvakið gamla skemmti- lega hugmynd um fjarstýringu á vörpu, með því að setja rafdrifna „Flettner-rot- ora“ eða snúða á höfuðlínu og fótreipi vörpunnar. Með því að snúa síðan snúð- unum, kemur fram sterkur þver-kraftur, sem kenndur er við þýzka vísindamann- inn Magnus og er því kallaður „Magnus effect“. Þessi kraftur getur svo lyft eða sökkt vörpunni, eða breytt opnun vörp- unnar eftir snúningsátt snúðanna sam- kvæmt óskum skipstjórans. Þessi búnaður verður reyndur á næstu mánuðum, en John- son kvaðst vera mjög bjartsýnn á árang- ur, (sjá mynd 5). R. W. Nelson frá Iðnþróunardeildinni í Seattle, hélt fyrirlestur um hörpudiskavél, sem opnar skelina, hreinsar og losar vöðv- ann úr skelinni. Það er nú verið að smíða slíka vél, sem á að geta hreinsað um 3600 hörpudiska á klst. með tveimur mönnum (sjá mynd 6). J. Scharfe tæknilegur yfirmaður veiðar- færadeildar F.A.O. í Róm, hélt stórmerk- an fyrirlestur um mælitæki og stýritæki fyrir veiðarfæri almennt. Kom þar fram að mjög hröð þróun er á þessu sviði í auknablikinu. Þar sem F.A.O. ætlar að halda alþjóðlega ráðstefnu um hliðstæð mál hér á Islandi í lok maí í ár, vei'ður ekki farið nánar inn á þessi mál að sinni. Að lokum má nefna stórmerkt erindi skrifað af Gordon C. Eddie, tæknilegum framkvæmdastj óra Iðnþróunardeildarinn- ar í Hull í Englandi. Fjallaði erindið um fiskirækt séða með augum verkfræðings- ins. Kom þar fram að fiskirækt virðist vera arðvænleg atvinnugrein, þótt enn sé of lítið vitað um mörg af vandamálum, sem koma fram í sambandi við fiskirækt. Hann nefndi sérstaklega mjög góðan árangur, sem náðst hefur með því að rækta fisk í upphituðu vatni. Var kælivatn frá kjarn- orkurafstöðvum notað til upphitunar. Var sýnd fróðleg kvikmynd með erindi þessu. Þetta er mál, sem við Islendingar þurfum að athuga mjög gaumgæfilega og það sem fyi’st. (Sjá mynd 7).

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.