Ægir - 15.09.1970, Blaðsíða 6
272
ÆGIR
GuSni Þorsteinsson, fiskifræðingur:
TÆKIMIMÁL
SKURÐUR Á NETI
1. Inngangur.
Þar sem höfundur þessarar greinar hef-
ur rekið sig á, að íslenzkum netagerðar-
mönnum hefur ekki verið kennt að reikna
út skurð á neti, er ekki að ófyrirsynju að
koma á framfæri nokkrum reglum, sem
gagnlegt er að kunna, þegar net er skorið.
Ég hef þegar kynnt nokkrum netagerðar-
mönnum reglur þessar lítillega og hafa þeir
hvatt mig til að birta þær.
2. Hugtök.
Gott getur verið að kunna nokkur skil
á heitum í netagerð á erlendum málum.
Segja má, að hver þjóð noti að miklu leyti
sitt eigið móðurmál í netagerð, þrátt fyrir
margvíslegar tilraunir til að samræma
þessi heiti fyrir öll mál. Nokkuð er um það,
að ensk heiti séu notuð utan enskumæl-
andi landa, en það fer þó minnkandi. Á
ensku er upptakan kölluð „mesh“ (m),
síðan „point“ (p) og leggurinn „bar“ (b).
Stofnun nokkur, sem nefnist International
Organization for Standardization (ISO)
og margar þjóðir eru aðiiar að, hefur sett
sér að markmiði að samræma ýmis heiti
og hugtök í iðnaði, enda ekki vanþörf á.
Hvað netagerð varðar, hefur gengið á
ýmsu um samræminguna. Eftir miklar
umræður var ákveðið að kalla upptökuna
„horizontal“ (H) og síðuna „vertical" (V),
en láta enska heitið „bar“ halda sér fyrir
legginn.
Þar sem höfundur þessarar greinar
taldi, að þessi heiti myndu eiga framtíð
fyrir sér, ákvað hann að nota þau við ís-
lenzkar ritsmíðar m. a. til að kynna þau
fyrir þeim, sem áhuga hafa á. Síðar ákvað
ISO að kalla upptökuna „tela“ (T) og síð-
una „natica" (N) og er ekki gott að segja,
hvort þessi heiti muni standa lengi. Með
hliðsjón af þeirri ringulreið, sem ríkir í
nöfnum á neti, fer bezt á því að nota ís-
lenzku heitin, en þægilegt getur þó verið
að kannast við hin ensku og alþjóðlegu.
Að lokum er þó rétt að minnast örlítið
á legginn. Þegar átt er við legg í netskurði
er átt við, að einn leggur hafi verið skor-
inn í sundur. Við það myndast í rauninni
„hálfur“.
Skurðurinn ein síða, tveir leggir eða
1S2L er sýndur á 1. mynd, til að um engan
misskilning geti verið að ræða.
1. mynd. Skurðarmynztrið ein síða, tveir legíl1'
(1S2L).