Ægir - 15.09.1970, Blaðsíða 11
ÆGIR
277
Hinn 29. marz s.l.
var nýju glæsilegu
101 brl. stálskipi
hleypt af stokkunum
í Skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts á
Akranesi og hlaut
það nafnið Siglunes
SH 22. Skipið er
teiknað af Guðmundi
Erlendssyni, skipa-
verkfræðingi, og er
sérstaklega styrkt
fyrir siglingar í ís.
Aðalvélin er 450 ha
Caterpillar, ljósavél-
in af Volvo Penta
gerð, 62 hestafla.
Fiskilestin er ein-
angruð og búin tækj-
um til kælingar og eru tækin af Sabro
gerð. Þá er skipið útbúið fyrir veiðar með
netum, línu og botnvörpu og búið öllum
nýjustu vélum og tækjum, sem í slíkum
fiskiskipum tíðkast.
Skipið var smíðað fyrir Hjálmar
Gunnarsson útgergarmann, Grundarfirði,
en kona hans, frú Helga Árnadóttir, gaf
skipinu nafn.
Ægir óskar hinum nýja eiganda, svo og
Grundfirðingum öllum, til hamingju með
hið nýja skip.
Um miðjan marz, s.
h var nýjum 10 brl.
bát hleypt af stokk-
unum hjá Bátalóni
h/f í Hafnarfirði og
hlaut hann nafnið
Kristín RE 380. Bát-
urinn er smíðaður úr
eik og furu og er all-
ur hinn vandaðasti.
Vélin er af gerðinni
Ford Parson 95 hö.
Báturinn er útbúinn
6 rafmagnsfæravind-
um, dýptarmæli og
talstöð.
Báturinn var smíð-
aður fyrir Kristfinn
Ólafsson Reykjavík.
Ægir óskar eiganda
til hamingju með hinn nýja farkost.