Ægir - 15.09.1970, Blaðsíða 10
276
ÆGIR
sem ekki er hægt að skera 1/2 UIL, skal
skera 1U2L, eins og sýnt er á 4. mynd.
i) Netbyrði (mynd 5) skal skorið úr 200
upptökum niður í 20 á 90 síðum. Fjöldi
umferða —L=180 (4) og í jöfnu (3)
þekkjum við, að úrtökurnar eru 180 og L/2
=90. Því hlýtur U=90. Því skal skera
1U2L. Við veitum því athygli, að þetta er
sami skurður og í dæmi h), þar sem minnk-
að var um heilan möskva í hverri umferð.
I dæmi i) þurftum við einmitt að minnka
um 180 möskva í 180 umferðum. Hér er
í báðum tilvikum um sama dæmið að ræða,
sett upp á dálítið mismunandi hátt, svo að
menn glöggvi sig betur.
j) Skera skal 1000 möskva bálk niður í
ekki neitt á 100 síðum. Umferðirnar eru
því 200=L og úrtökurnar nú 1000 möskv-
ar og U því 900. Því skal skorið 9U2L
eða 5U1L og 4U1L á víxl.
k) Skera skal 1000 möskva bálk niður í
ekki neitt á 260 síðum. Jöfnur (3) og (4)
gefa nú L=520 og U=740. Til þess að fá
nú nothæft skurðarmynztur verður að
setja L=500 og U=750 og notast við
skurðinn 3U2L. Með því að nota þennan
skurð verður dýpt bálksins þó einungis 250
síður, eða 10 síðum minni en ætlunin var.
Til þess að dýpka netið um þessa 10
möskva, verður að skera aukalega 20 leggi,
sem dreifa má jafnt á skurðkantinn.
Dæmi þessi eru væntanlega fleiri en
nauðsynlegt er, til þess að menn átti sig
á því, hvernig í’eikna skal út skurð á neti.
Til hægðarauka verður þó loks sýnt í
töflu I samhengið á milli umferðafjölda á
hverja úrtöku og tilsvarandi skurðar-
mynzturs.
NÝ FISKISKIP
I maímánuði s. 1.
var nýjum 11 brl. bát
hleypt af stokkunum
hjá Bátalóni hf- í
Hafnarfirði og hlaut
hann nafnið Ása RE
17.
Báturinn er smíð-
aður úr eik og furu
og er allur hinn vand-
aðasti. Vélin er af
gerðinni Ford Power
95 hö.
Báturinn er vel út-
búinn tækjum, má
þar nefna dýptar-
mæli, talstöð, svo og
5 rafmagnsfæravind-
ur. Báturinn er enn-
fremur útbúinn með sérstökum toggálga að
aftan, er gerir skuttog mögulegt.
Báturinn er smíðaður fyrir bræðurna
Sigurþór og Vilberg Sigurðssyni í Reykja-
vík og óskar Ægir þeim til hamingju með
hinn nýja farkost.