Ægir - 01.10.1971, Side 8
262
ÆGIR
Ásgeir Jakobsson:
Rækjuflokkunarvél um borð
ÞAÐ væri hræsni að segja að um auðugan
garð hafi verið að gresja fyrir sjávarút-
vegsmenn á hinni alþjóðlegu vörusýningu,
sem haldin var í Laugardalshöllinni dag-
ana 26. ágúst — 12. september. s.l.
Nokkur fyrirtæki sýndu þarna bátavél-
ar, spil, fiskkassa, björgunarbáta og vesti,
toghlera, og skipslíkön. Yfirleitt voru það
vélaverkstæðin og plastgerðir, sem þarna
bar langmest á. Lítið held ég, að þarna
hafi verið um nýjungar. Eins og efni
stóðu til voru fyrirtækin að auglýsa fram-
leiðslu sína til að örva söluna, og því ekki
ástæða á svona sýningum til að búast allt-
af við algerum nýjungum á einhverju sviði.
Þarna var þó lítil og handhæg rafmagns-
stýring fyrir smábáta til að hafa frammi
á dekki við línudrátt og veit ég ekki til að
hún hafi nokkursstaðar verið sýnd áður
né sé nokkurs staðar komin í notkun.
Á sýningunni voru flokkunar- og
vinnsluvélar þeirra Sigmundar í Vest-
Rækjuflokkunarvél.
mannaeyjum og Sigurðar Kristinssonar á
Hólmavík. Ekki kann ég deili á því, að
hve miklu leyti rétt er að kalla þessa hug-
kvæmu menn uppfinningamenn. Einka-
leyfaskrifstofan sker úr um það atriði, en
vélar og frumkvæði þessara manna er okk-
ur óumdeilanlega til mikils gagns.
Rækjuflokkunarvél Sigurðar Kristins-
sonar er tiltölulega ný af nálinni. Hún er
ætluð til notkunar um borð í bátunum, og
er enn ekki nema í tveimur bátum, báðum
á Hólmavík. Annar þeirra tók hana um
borð í janúar, hinn í febrúar í vetur sem
leið og hafa notað hana síðan með góðum
árangiú, er mér sagt af þeim, sem gerzt
mega vita.
Vélinni er ætlað að sortera smárækju
úr aflanum þegar losað er úr pokanum og
svo fljótt, að hún komist lifandi í sjóinn
aftur. Við höfum að margra dómi gert
Rækjuflokkunarvél.