Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1971, Síða 13

Ægir - 01.10.1971, Síða 13
ÆGIR 267 gerðar um nokkurra ára bil og góður samanburður hefur fengizt, að hægt verð- ur að segja með einhverri vissu, hvort árgangur ákveðinnar fisktegundar þess árs sem athugun fer fram, sé stór eða lítill, þ- e. hvers afla megi vænta af honum síð- ar. Enn sem komið er höfum við aðeins samanburð við árið í fyrra og teljum okk- ur því aðeins hafa í höndum vissar vís- bendingar, án þess að geta fullyrt nokk- uð. bóðningarnar Meirihluti þeirra lóðninga, sem feng- ust, stafaði af fiskseiðum, en á vissum hafsvæðum lóðaði einnig verulega á öðr- um lífverum, svo sem marglyttu og smáu svifi. Heildarmagn fiskseiða ásamt leiðar- línum skipanna er sýnt á 1. mynd. Seiða- lóðningarnar voru flokkaðar eftir ákveðn- um reglum og þeim gefnar einkunnirnar: mjög mikið, mikið, sæmilegt, lítið og ekk- ert (sjá nánari skýringar á 1. mynd). Af vissum ástæðum var ekki unnt að flokka þær lóðningar sem fengust í vestan- verðu Grænlandshafi og við Austur-Græn- land, en þar lóðaði svo til eingöngu á karfaseiðum og í verulegu magni. Aðrar fisklóðningar en seiði koma ekki fram á 1. mynd. I heild má segja að miklar ungfisk- lóðningar hafi helzt fengizt á útbreiðslu- svæði karfans á djúpmiðum fyrir Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi. Einnig lóðaði talsvert á köflum fyrir Norðurlandi. Ann- arsstaðar var magnið minna. Úti fyrir Austfjörðum og austanverðu Norðaustur- landi voru engin fiskseiði, né heldur að 1S' ^ 10' f Jar. Mayen I. MYND ----- EKKERT LlTID SCMILEGT ■HWWt MIKID MJÖG MIKID o ANTON DOHRN A Xrni FRIÐRIKSSON 0 BJARNI SCMUNDSSON • CIROLANA V G.O.SARS 1. mynd. Lega ísbrúnarinnar, leiðarlínur, togstöðvar og seiðalóðningar í júlí-ágúst 1971.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.