Ægir - 15.11.1971, Page 13
ÆGIR
339
Hvernig vélinni er komið fyrir um borð
Þeir útgerðarmenn og sjómenn, sem
hyggja á vélakaup, ættu að ráðfæra sig við
IDU eða framleiðandann um það, hvernig
á að koma vélinni, færiböndunum og vösk-
unarkarinu fyrir á skipinu.
Vélin sjálf kemur að takmöi’kuðum not-
um, ef ekki fylgja henni færibönd bæði
að og frá henni og vöskunai'kar.
Það verður að vanda til staðsetningar
vélarinnar og taka tillit til hæðar hennar
og þyngdar og þá sérstaklega kassans, sem
vélin er mötuð úr. Eins verður hún að
losna gi’eiðlega og fyrirstöðulaust við fisk-
inn.
Við smíði nýrra skipa er gert ráð fyrir
vélinni við smíðina, eins og öðrum tækjum.
I hinum nýja skuttogai-a, Ben Lui, var
vélinni og þeim tækjum, sem henni fylgja,
komið fyrir á fiskaðgerðardekkinu. Á
Mynd 3. Útlitsmynd af Gerð 28. Þessi vél er ivm
borð í Conqueror.
smærri skipum er henni stundum komið
fyrir aftan til við hvalbakinn, en einnig
stundum á miðdekkinu.
Ásg. Jcikobsson endursacföi úr
Fishing News International.
/--------------------—-------------------------
Frá Verðlagsráði sjávarútvegsins
^____________________________________________j
Verð á hörpudiski
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski
frá 1. nóv. 1971. til 31. maí 1972. Hafi fulltrúar
í Verðlagsráði ekki sagt lágmarksverðinu upp fyr-
ir 16. maí 1972, framlengist gildistíminn til 31.
desember 1972.
Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi,
7 cm á hæð og yfir, hvert kg .... kr. 8.30
Verðið miðast við, að seljandi skili hörpudiski
á flutningstæki við hlið veiðiskips, og skal hörpu-
diskurinn veginn á bílvog af löggiltum vigtar-
manni á vinnslustað, og þess gætt, að sjór fylgi
ekki með.
Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Fisk-
mats ríkisins og fari gæða- og stærðarflokkun
fram á vinnslustað.
Reykjavík, 1. nóvember 1971.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Veið á síld
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur
ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á síld veiddri
við Suður- og Vesturland, þ. e. frá Hornafirði
vestur um að Rit, eftirgreind tímabil:
Síld til söltunar:
Hvert kg ......................... kr. 13.80
Verðið miðast við nýtingu síldar til söltunar
af stærðunum 300 til 500 og 500 til 700 stk. í
tunnu, einstakar síldar séu þó ekki smærri en 8
stk pr. kg miðað við hausskoma síld.
Mismunur á innveginni síld og uppsaltaðri síld
skal reiknast á bræðslusíldarverði. Hver uppsöltuð
tunna hausskorin og slógdregin skal reiknast 146
kg af heilli síld. Úrgangssíld er eign bátsins og
skal lögð inn á reikning hans hjá síldarverk-
smiðju.
Þar sem ekki verður við komið að halda afla
bátanna aðskildum í síldarmóttöku, skal sýnishorn
gilda sem grundvöllur fyrir hlutfalli milli síldar
til framangreindrar vinnslu milli báta innbyrðis.
Verðið gildir frá 20. október til 31. desember
1971, en fulltrúum í Verðlagsráði er heimilt að
segja verðinu upp frá 15. desember með viku
fyrirvara.
Síld til frystingar í beitu:
A) Stórsíld (3 til 7 stk í kg), hvert kg kr. 13.80
B) Smærri síld (8 stk. eða fleiri í kg),
hvert kg......................... — 7.20
Verðið miðast við það magn, sem fer til vinnslu.
Vinnslumagn telst innvegin síld að frádregnu því