Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1974, Blaðsíða 11

Ægir - 01.06.1974, Blaðsíða 11
iðnaðinum hafa verið búin, töldu eigendur sér ekki fært að halda starfseminni áfram.“ Röng gengisskráning var nú enn orðin mjög tilfinnanleg á þessum árum og það hjálpaði sem fyrr tollfrjálsum innflutningi útlendinga a veiðarfærum. Jafnframt hrjáðu innflutnings- °S gjaldeyrishömlur mjög innlend fyrirtæki °S gerði þetta hvorttveggja Hampiðjunni sam- keppnina óhagstæða. Þar við bættist að sann- anlegt þótti, að skandinavisk fyrirtæki seldu hér á markaði vörur sínar ódýrari en á heima- markaði — en þá er kallað að um undirboð sé að ræða. Enn bættist það við á þessum árum, að erfiðleikar togaraútgerðarinnar voru óvenju- miklir og bitnaði það vitaskuld á Hampiðj- unni. Þegar krónan loks var færð til réttrar skrán- lngar á fyrri hluta árs 1960 var Hampiðjan þrotin að birgðum vegna innflutnings- og gjaldeyrishaftanna, og varð því strax og þeim létti að kaupa mikið magn hráefnis á nýja genginu, en selja, svo sem venja er, það litla, sem til var af eldri birgðum á gömlu verði. Þetta allt hafði í för með sér mikinn rekstrar- fjárskort á árinu 1960 og varð þá enn að auka hlutaféð. Örlagaárið. Arið 1954 fóru fyrst að koma hingað þorska- uetaslöngur ár næloni, en fram til þessa hafði sjómönnum ekki líkað að nota gerviefni í botnvörpur. En á árinu 1964 hafði Portúgöl- Um tekizt að framleiða og ná hér markaði á vörpum úr polyethylene, sem voru allt í senn sterkari, léttari í sér og veiðnari en hamp- vörpurnar. Þetta var mikið örlagaár fyrir Hampiðjuna. Eú var annað hvort að gera, að stokka enn flnu sinni upp spilin og endurnýja vélakost- lnn til framleiðslu úr gerviefnum — eða Pakka saman — og það var freistandi. Sporin hraeddu. Netagerð Vestmannaeyja hafði reynt a sínum tíma að taka upp samkeppni við inn fluttu nælonþorskanetin, en orðið að gefast UPP, og það má segja að eftirfarandi orð, þó að bau væru síðar rituð, geti kallast kveðjuorð þeirrar veiðarfæragerðar: ..Engar hömlur voru á innflutningi nælon- þorskaneta, en kunnugt var, að hinir erlendu framleiðendur nutu og njóta ýmissa fríðinda, svo sem niðurgreiðslna á hráefni, framleiðslu- styrkja og tollverndar af hálfu ríkisstjórna sinna landa .... Þegar þess var farið á leit við Iðnaðarmálaráðuneytið 1958, að þessi að- stöðumunur yrði að einhverju leyti jafnaður, m. a. með því að viðskiptagjaldið, sem var 55% yrði lækkað niður í 30% af netagarni, fengu þessar óskir og aðrar engan hljóm- grunn.“ Netagerð Björns Benediktssonar hætti um þessar mundir, og það fyrirtæki kvaddi með þessum orðum:.......eftir margra ára reynslu af öryggisleysi gagnvart hömlulausum inn- flutningi neta, hversu sem áraði hér á landi í gjaldeyrismálum eða öðrum sviðum efna- hagslífsins, sýnilegu áhugaleysi flestra for- ystumanna útgerðarmanna og stjórnvalda um aðstöðu og afdrif veiðarfæraiðnaðarins og án nokkurrar vonar um að á þessu yrði breyting, kom ofannefnd ákvörðun (að hætta rekstri) — af sjálfu sér .... “ Veiðarfæragerðirnar höfðu verið 8 talsins um tíma, en árið 1964 var aðeins ein eftir, Hampiðjan. Það fyrirtæki hafði þó sannarlega ekki farið varhluta af erfiðleikunum og enn stóð það nú á tímamótum. Átti að ráðast í stórfelld vélakaup til framleiðslu vörpugams og varpna úr gerviþráðum? Það var auðvelt að selja húseignir Hamp- iðjunnar á góðu verði, þetta voru miklar hús- eignir á góðum stað í borginni. Einnig var mjög líklega hægt að losna við hampvélarnar með litlum skaða. En stofnendurnir og fyrstu hluthafarnir voru ekki dauðir úr öllum æðum og enn reiðubúnir að róa í tvísýnu. Það var Vélasalur. Tvær vélasams tæður, sem vinna þrxöi og þunn bönd úr hráefninu. Æ G IR — 147

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.