Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1974, Blaðsíða 12

Ægir - 01.06.1974, Blaðsíða 12
ákveðið að taka upp baráttuna og endurnýja vélakostinn til framleiðslu úr gerviefnum. Skilningur stjórnvalda á nauðsyn innlends veiðarfæraiðnaðar virtist einnig vera að auk- ast og margir stjórnmálamennirnir vildu nú styðja við bakið á þessari einu veiðarfæra- gerð, sem eftir var. Kannski má segja, að þar hafi eins dauði orðið annars brauð, eins og oftar. Líkast til hafa afdrif hinna veiðargerð- anna opnað augu manna fyrir því, að einhverra aðgerða væri þörf, ef þessi iðngrein átti ekki að verða aldauða í landinu. Hampiðjumenn byrjuðu á því að flytja inn gerviþráðinn og gátu snúið úr honum garn og kaðla í gömlu spuna- og tvinningarvélunum. Framleiðsla á fiskilínum úr sísalhampi hélzt áfram, því að enn hafði ekki fundizt gerviefni, sem næði að sökkva nógu fljótt. Það kom svo síðar í hlut Hampiðjunnar að finna aðferð til að vinna fiskilínur með góðum árangri úr gerviefnum. Á bessu ári, 1964, skipaði iðnaðarmálaráð- herra nefnd til að fjalla um innlendan veiðar- færaiðnað og skilaði hún áliti sínu um haustið, og var það í megindráttum á þessa leið: — íslenzkur veiðarfæraiðnaður hefur aldrei notið tollverndar í þeim skilningi, sem lagður er í það orð, aldrei verið verndaður fyrir sam- keppni með innflutningshömlum á erlendum veiðarfærum, og aldrei notið styrkja. Miklar ./ ■* Hráefnið: Polyethylene- og polypropylenekom. Dökku kornin eru litarkorn. sveiflur og tilflutningur fólks á vinnumarkaði hafa háð þessari iðngrein sem öðrum, verð- bólga hefur orsakað óhagstæðan skattagrund- völl, röng gengisskráning hefur og háð veiðar- færaiðnaðinum. Lönd þau, sem flutt hafa inn á hinn óverndaða íslenzka veiðarfæramarkað hafa sjálf verndað sinn veiðarfæraiðnað með tollum, og að því er virðist með ýmsum öðr- um duldum hætti. Nefndin taldi, að stefnan gagnvart íslenzk- um veiðarfæraiðnaði bryti í bága við þjóðar- hag, en bar væri ekki við eina ríkisstjórn að sakast fremur en aðra — þó hefði uppbóta- kerfið, sem hér ríkti um skeið, leikið þessa iðngrein sérlega hart. Nefndin varð sammála um, að hömlur á innflutningi veiðarfæra væri til tjóns bæði fyrir sjávarútveginn og iðngreinina sjálfa, og þyrfti að grípa til annarra ráða til styrkt- ar íslenzkum veiðarfæraiðnaði — og til hvaða ráða, sem gripið yrði, mætti það ekki bitna á íslenzkum sjávarútvegi, — og nefndin bætti við — að þetta væri mál allrar þjóðarinnar. Lokaniðurstöðu nefndarinnar má telja þessi ummæli á bls. 42 í nefndarálitinu: — Islenzkur veiðarfæraiðnaður er og hefur verið algjör hornreka í atvinnulífi þjóðar- innar. Nefndin studdi álit sitt ýmsum jákvæðum rökum fyrir því að hér væri haldið uppi inn- lendri veiðarfæragerð, svo sem að markaður væri hér stór, hráefni ekki dýrara til þessarar iðngreinar hér en annars staðar — önnur lönd, sem legðu stund á veiðarfæragerð yrðu einnig að flytja inn hráefnið. Þessi iðngrein gæti notið góðs af sérþekkingu sjómannastéttar- innar og miðað framleiðsluna sérstaklega við okkar aðstæður — og nefndin benti á, að saga Hampiðjunnar sannaði, að veiðarfæraiðnaður gæti þrifizt hér jafnvel við lakari aðbúnað en gerðist í samkeppnislöndunum. Nú hefði mátt ætla, að þegar stjórnvöld voru sérstaklega hlynnt Hampiðjunni og stjórnskipuð nefnd skilaði mjög jákvæðu áliti, að þá hafi nú blásið byrlega fyrir Hamp- iðjumönnum með endurnýjun vélakostsins fyrir gerviefnavinnsluna og alla starfsemina. En sú varð nú ekki raunin á. Að vísu naut Hampiðjan margvíslegrar aðstoðar og fyrir- greiðslu stjórnvalda og lánastofnana í sam- bandi við vélakaupin, en þegar stjórnvöld ætluðu að létta undir með rekstrinum með því að leggja 2% verðjöfnunargjald á innflutt 148 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.