Ægir - 01.06.1974, Side 23
netum, nema á grundvelli hagstæðra samn-
inga við Japani um vélar, tækniaðstoð og jafn-
vel hráefnakaup. Hampiðjan hefur um nokk-
urt skeið staðið í sambandi við japanska aðila
um þessi mál og er þess vænzt, að bráðlega
verði tekin ákvörðun um, hvort hyggilegt sé
að hefja slíka framleiðslu.
Þó að mikill uggur gripi menn í báðum
styrjöldunum um veiðarfæraskort hérlendis,
þá nægði sú reynsla ekki til þess, að menn
teggðust á eitt til að efla innlenda veiðarfæra-
gerð. Nú er eftir að sjá, hvort olíuskorturinn,
sem vakti mikinn ugg í þessum efnum líka, þar
sem gerviefnin sum eru unnin úr olíu, svo sem
uælon, nægir til þess, að samstaða náist um að
framleiða innanlands þorskanet og herpinæt-
ur.
Forstjórar Hampiðjunnar hafa verið þessir:
Guðmundur S. Guðmundsson frá stofnun
1934 til dauðadags (20. maí 1942). Frímann
Ólafsson frá 1942 til 1956 eða einnig til dánar-
Þarftu að fá þé r nýja botnvörpu?
VÆNGJATROLL, FISKITROLL,
RÆKJUTROLL
1. flokks vinna - Hraðar viðgerðir
Gerum tilboð
Sumir veiða vel, en ÞU veiðir
betur með botnvörpu frá
JOHS. KLAUSEN’S EFTF.
V.H.C. Jensen
Vodbinderi, 0.Havn
Sími (08)44 28 10 - 44 20 46
Skagen, Danmark
dægurs, (8. jan. 1956), en þá tók við Hannes
Pálsson, sem verið hefur forstjóri síðan, þar
til á síðast liðnu ári, að hann lét af störfum
fyrir aldurssakir, og tók við af honum Magn-
ús Gústafsson. Stjórn Hampiðjunnar nú skipa:
Árni Vilhjálmsson, prófessor, formaður,
Hannes Pálsson, skipstjóri, Vilhjálmur Árna-
son, skipstjóri, Jón Guðbjartsson, forstjóri og
Bragi Hannesson, bankastjóri.
Útgerð og aflabrögð
Framhald af bls. 156
TOGARARNIIR
í marz.
Fram yfir miðjan mánuðinn voru togar-
arnir einkum úti af Vestfjörðum, en eftir
það mest á Eldeyjarbanka.
Aflabrögð máttu teljast fremur góð.
Erlendis var landað 914,0 lestum úr 6 veiði-
ferðum og heima 3542,5 lestum úr 20 veiði-
ferðum, samtals 4456,6 lestum úr 26 veiði-
ferðum.
í marz í fyrra barst enginn afli á land
frá togurunum sökum verkfalls.
TOGARARNIR
í apríl.
í apríl voru togararnir aðallega á Selvogs-
bankasvæðinu, svo sem venja er á þeim árs-
tíma. En heldur var afli tregur og ber tvennt
til, minni fiskgegnd en undanfarið og skert
athafnasvæði sökum friðunaraðgerða.
Nokkur skip fóru til Austur-Grænlands
og fengu þar flest dágóðan afla.
í mánuðinum var landað erlendis 1469,6
lestum úr 8 veiðiferðum og heima 3381,4
lestum úr 22 veiðiferðum, samtals 4851,0
lestum úr 30 veiðiferðum.
Á sama tíma í fyrra var landað erlendis
1662,4 lestum úr 11 veiðiferðum og heima
2998,2 lestum úr 17 veiðiferðum, samtals
4660,6 lestum úr 28 veiðiferðum.
ÆGIR — 151