Ægir

Árgangur

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 8

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 8
Haf- og fiskirannsóknir I________________________I Síldarleit 1973 Jakob Jakobsson: Á íslandsmiðum Enda þótt síldveiðar hafi ekki verið stund- aðar norðanlands og austan undanfarin þrjú ár, hafa umfangsmiklir rannsóknaleiðangrar verið farnir á þessi svæði, og í þeim verið gerðar athuganir á ástandi sjávar, þörunga- gróðri, átu og dreifingu uppsjávarfiska. Sex rannsóknaskip tóku þátt í þessum svokölluðu vorleiðöngrum í maí og júní 1973, þar af voru 4 sovésk og tvö íslensk. Norsk rannsókna- skip hafa hins vegar ekki tekið þátt í þessum sameiginlegu rannsóknum nokkur undanfarin ár. Sovésku rannsóknaskipin 4 könnuðu svæð- ið frá Svalbarða og suður undir Hjaltland og Færeyjar milli íslands, Jan Mayern og Noregs. Rannsóknaskipið Bjarni Sæmunds- son var við athuganir vestan, norðan og norð- austanlands, en Árni Friðriksson var einkum við rannsóknir í Austurdjúpi á svæðinu frá Austfjörðum og þaðan austur á móts við Færeyjar. Af þessu má ljóst vera, að rann- sóknaleiðangrar vorið 1973 voru síður en svo umfangsminni en á síldarárunum á s. 1. ára- tug. Munurinn er hins vegar sá, að allt fram að árinu 1969 reyndist unnt að finna og kort- leggja ætisgöngur norsku síldarinnar, en nú varð síldar ekki vart á framangreindu rann- sóknasvæði. Að því er varðar aðrar niður- stöður þessara rannsókna, skal þess getið, að sjávarhiti reyndist aðeins lægri en í með- allagi vestan íslands, en úti af Norðurlandi gætti áhrifa Atlantssjávar í ríkara mæli heldur en verið hefur allt frá árinu 1964. Þörungagróður úti af Norður- og Norðaustur- landi reyndist nærri meðallagi, en áta var fremur lítil nema helst í kalda sjónum úti af Norðausturlandi. Enda þótt norsk rann- 162 — Æ GI R sóknaskip hafi ekki tekið þátt í hinum sam- eiginlegu vorrannsóknum nokkur undanfarin ár, fer því þó víðs fjarri að Norðmenn stundi ekki verulegar rannsóknir á norsk - íslensku síldinni, en hún hrygnir eins og kunnugt er við vesturströnd Noregs. Fyrstu þrjá mán- uði ársins 1973 höfðu þeir t. d. allt að þrjú leiguskip við síldarrannsóknir og var megin- verkefni þeirra fólgið í því að finna og fylgja eftir síldargöngum, er kynnu að vera á leið inn á hrygningarstöðvarnar við vesturströnd- ina. í örfáum orðum má segja að helstu niðurstöður að því er varðar síldargöngur inn á hrygningarstöðvarnar hafi verið þær, að sild, sem vart hafði orðið við í svokölluðu Ingeyjardjúpi úti af norðvestanverðum Norð- ur-Noregi í nóvember 1971, hafði gengið vestur á bóginn í janúar og dreifst, en þéttst aftur í byrjun mars vestur af Lófót og gengið þaðan inn á hrygningarstöðvarnar (Röstbankann). Meðan á þessum leitarleiðöngrum stóð, voru reknet lögð 51 sinni, fjórum sinnum var kast- að nót, og samtals fengust úr þessum veiði- tilraunum 28 síldarsýni frá svæðinu úti af Norður-Noregi, og Sunnmæri á tímabilinu frá 10. janúar til 28. mars. Athuganir á árgangaskipun síldarinnar sýna, að á öllu framangreindu svæði var árgangurinn frá 1969 lang sterkastur, eða frá 80 — 97% og að meðaltali var þessi ár- gangur 87% af þeirri síld er fékkst í fram- angreindum 28 sýnum. 1 þessu sambandi er rétt að geta þess, að eitt af einkennum norsku vorgot-síldarinnar hefur jafnan verið gífur- legur munur á styrkleika árganganna. Þannig var árgangurinn frá 1959 mjög sterkur, ár- gangamir frá 1960 og 1961 voru miðlungs- stórir, sömuleiðis árgangarnir frá 1963 og 1964, en allir aðrir árgangar allt frá árinu

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.