Ægir

Árgangur

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 23

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 23
ms, en 46% eða 4.8 milljónir í innhöfum og vötnum. Kínverjar sækja ekki langt frá ströndinni, West 100 sjóm. og eru aldrei meir en viku uti, en langmest er um dagróðra. Enda er ekki vitað til, að þeir eigi neitt af stórskipum til að sækja víða vegu, hinsvegar er álitið að bátafloti þeirra sé hvorki meira né minna en 60 þúsund talsins og þar af meira en helm- ingur undir 30 brl. með 20—100 ha. vélar. Og einnig er talið, að það sé varla meira en 10— 15% af íiskiflota þeirra, sem geti sótt á djúp- uúð þeirra úti fyrir ströndinni. Á síðustu ár- Um hafa Kínverjar tekið að búa fiskibáta sma fiskileitartækjum og eitthvað af bátum þeirra veiðir með hringnót og þá væntanlega kraftblökk. Það, sem mesta athygli vekur í sambandi við veiðar Kínverja er hin mikla veiói. úr vötnum, sem áður er getið. Vatna- aflinn er vatnaplöntur, tvær tegundir fiska Tanaga og Koi (karfategund). Mest af þeirri veiði er í héraðinu Hou-Pei, en þar er ótölu- legur grúi vatna og díkja. En Kínverjar leggja einnig mikla áherzlu á fiskeldi, sem þeir að vísu hófu seint eða ekki fyrr en 1956 að marki, en síðan af þeim mun meiri krafti, og 1971 voru fiskiræktarstöðvar 640 þús. ha. að flatar- rnáli og 1972 tóku beir 4 milljarða eldisseiða í eldi og er það tvöfalt meira en 1971 og aí því sest, hvað hér er um stór stökk að ræða. 6 seiði af hverjum 10 ná markaðsstærð. Vegna samgönguerfiðleika leggja Kínverjar aherzlu á að dreifa fiskræktarstöðvunum sem ^nest um allt landið, þannig að hvert hérað geti ræktað fisk til eigin þarfa. Samhliða þessu er' svo um miklar áveituframkvæmdir að ræða. Sá hængur er á allri þessari starf- semi, að notkun tilbúins áburðar hefur stór- aukizt í landinu, en það hefur aftur áhrif til aukinnar mengunar í tjörnum, ám og vötnum, þar sem fiskeldið fer fram. (Eins og áður segir, er þessi kafli um Kína 1 tímaritinu Information úber die Fischwirt- schaft þes Auslandes. samantekin eftir jap- °nskum heimildum og því sem Japanir hafa Sefið upp og er ekki samhljóða skýrslu FAO. býð.) Eyjaálfan. Ástralíumenn juku áfram afla sinn og jafn- framt verðmæti hans, vegna þess, að skel- fiskaflinn og túnfisksaflinn voru hlutfallslega meiri en áður hefur verið. Aflinn dróst aftur á móti saman hjá Ný- sjálendingum, þrátt fyrir aukna viðleitni til að auka aflann. Bæði þessi lcnd óttast mjög ofveiði af völdum útlendinga á miðum sínum, og telja að nauðsynlegt sé að stilla sókninni í meira hóf en nú er. Sovétríkin. Vegna hinnar miklu sóknar á öll heimshöf hafa Sovétríkin aukið afla sinn á árinu 1972 um 420 þús. lestir eða 5.7%. Langmest af þess- um afla var veiddur á úthöfunum. Floti Sovétmanna er gífurlegastór og 1. júlí var talið að hann væri 2.863 skip og sam- anlögð stærð þeirra 3.46 millj. rúmlesta. Enda þótt Sovétmenn beindu sókn sinni sem fyrr mikið á Norður-Atlantshafið og ykju hana þar, þá jókst sókn þeirra miklu meira í Suðurhöfum, og þangað sendu þeir stærstu frysti- og verksmiðjutogara, sem byggðir hafa verið til þessa. Rannsóknir Sovétmanna og veiðitilraunir á þessum slóðum, Suðurhafssvæðinu, beinast mjög að ljósátu (krill), en hún er þarna í óhemju magni, og telja Sovétmenn, að það muni borga sig að veiða hana til manneldis (sjá grein í Ægi 12. og 14. tbl. 1973). Eðlilega stendur mörgum stuggur af sístækkandi flota Sovétríkjanna, en jafnframt því að auka sinn eigin flota hjálpa Sovétríkin ýmsum vanþró- uðum ríkjum, svo sem Kúbu, Chile og Perú og sumum Afríkuríkjunum, með að byggja upp fiskiflota sinn og kaupa af þeim fiskafurðir. Jafnframt aukinni sókn á úthöfin leggja Sovétmenn mikla áherzlu á auknar veiðar í innhöfum landsins og fiskeldi í vötnum þess. Ástæða Sovétmanna til þessara miklu áherzlu, sem þeir leggja á fiskveiðar, alls- staðar þar sem þeir eygja einhverja mögu- leika, stafar, líkt og hjá öðrum fjölmennum þjóðum, af eggjahvítuþörfinni, enda fer 72% af afla Sovétmanna til manneldis og að auki flytja þeir inn fisk til manneldis. Æ GIR — 177

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.