Ægir

Árgangur

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 11

Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 11
talsverðar lóðningar suður af Tvískerjum víð botn Breiðamerkurdýpis, eða nánar tiltekið ■— 19 sjómílur ANA, A og ASA af Ingólfs- höfða. Við nánari athugun kom í ljós að hér Var á ferðinni ókynþroska tveggja ára síld °g reyndist stærð hennar 18 — 22 cm. og hyngd um 70 g. Geröar voru ítarlegar mæl- lngar á magni þessarar ókynþroska síldar °g voru niðurstöður þær, að hér væri um tiltölulega góðan árgang að ræða og væri ekki olíklegt að hann væri um helmingi sterkari en næstu árgangar á undan. Þannig má géra ráð fyrir að árgangurin frá 1971 geti verið allt að 150 — 200 milljónir sílda, en þessi árgang- Ur mun hrygna í fyrsta skipti sumarið 1975 °g bætast þá í hinn kynþroska hluta stofnsins. Eins og á undanförnum árum reyndist sum- argotssíldin í miklum meirihluta, eða um 95% at þeim sýnum, sem tekin voru. Mynd 2 sýnir niðurstöður útreikninga á stærð sum- argotssíldarstofnsins íslenska á árunum 1960- 1973 og spá fyrir árin 1974-1975. Myndin anni til september 1975. Skástrikaði hluti súln- anna sýnir stserð hrygningarstofnsins, en óstrik- hluti þeirra sýnir hve mikið er af ókynþroska ‘^Qf/ja ára síld. synir greinilega áhrif síldveiðibannsins, sem verið hefur í gildi frá því snemma á árinu 1912, en við árslok 1971 var stærð hrygningar- stofnsins komin niður í 14,2 þús. lestir. Eftir ársfriðun hafði stærð hans aukist í 20 þús. lestir og að meðtalinni þriggja ára síld, var stofnstærðin komin í 34 þús. lestir. í fyrra Var hrygningarstofninn 37 þús. lestir, en 51 Pus. lestir ef þriggja ára síldin er talin með. Haustið 1974 er gert ráð fyrir að hrygningar- stofninn verði kominn í 56 þús. lestir en verði 84 þús. lestir ef hinn tiltölulega stóri 1971 árgangur er meðtalinn, þar sem geri er ráð fyrir að hann verði um 28 þús. lestir á hausti komanda. Eins og áður segir, hrygnir þessi árgangur í fyrsta skipti sumarið 1975 og bætist þá í kynþroska hluta stofnsins, þannig að hann verður þá samtals um 95 þús. lestir haustið 1975. Við sjáum greinilega á 2. mynd að þetta er langmesta viðbót, sem hrygn- ingarstofninn hefur fengið á undanförnum ár- um, þ. e. a. s. hann eykst úr 56 þús. lestum í 95 þús. lestir milli áranna 1974 og 1975, eða um nærri 40 þús. lestir. Það skal sérstaklega tekið fram, að það sem að framan er sagt um vöxt íslenska sum- argot-síldarstofnsins, er byggt á þeirri for- sendu að síldin verði friðuð til 1. sept. 1975. Því er ekki að leyna að á undaförnum mánuðum hefur sú skoðun oft. verið látin í ljós við mig, að ekkert sé því til fyrirstöðu að hefja síldveiðar við Suðurland nú þegar á þessu ári. Að sjálfsögðu ber að viðurkenna og fagna því að sumargot-síldarstofninn hef- ur dafnað og komist úr bráðri hættu á þeim tveimur árum sem hann hefur verið frið- aður. Ef við hinsvegar athugum 2. mynd nánar, sjáum við að haustið 1974 verður um þriðjungur síldarinnar á miðunum ókynþroska þriggja ára síld, ef miðað er við þyngd. Sé hins vegar miðað við fjölda, lætur nærri að um 45% Suðurlandssíldarinnar á hausti kom- anda verði af framangreindum árgangi. Að framansögðu er augljóst, að verði herpinóta- veiðar leyfðar haustið 1974 er mikil hætta á að verulegur hluti aflans verði ókynþroska þriggja ára gömul síld. Þá ber einnig að hafa í huga, að síldarstofninn hefur enn ekki náð sömu stærð og hann var í árið 1967, hvað þá ef miðað er við fyrri ár. Með því að fram- lengja síldveiðibannið til haustsins 1975 vinnst einkum tvennt: 1. Meginhluti aflans verður þá stór kyn- þroska síld. 2. Stærð hrygningarstofnsins hefur nærri tvöfaldast og ætti að hafa náð svipaðri stærð og hann var á árunum 1966-1967, en í ljósi fyrri reynslu verður að telja að varla megi síldarstofninn minni vera til þess að unnt sé að stunda arðbærar síldveiðar sem einhverju máli skipta. Æ GIR — 165

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.