Ægir - 15.06.1974, Blaðsíða 15
Útgerð og
aflabrögð
SUÐUIí- OG SUÐVESTURLAND
!• -15. maí 1974.
Vertíðarlok.
Gæftir voru góðar, en afli mjög misjafn.
Afli bátaflotans á þessu tímabili, miðað við
óslægðan fisk, var 12.953 (13.089) lestir bol-
fiskur auk þess 103 (97) lestir rækja og
103 (25) lestir hörpudiskur. Ennfremur lönd-
uðu 6 síðutogarar 1.462 lestum úr 6 veiðiferð-
um og 11 skuttogarar 2.471 lest úr 12 veiði-
ferðum miðað við óslægðan fisk.
Heildarafli bátaflotans frá áramótum var
110.888 (J35.607) lestir bolfiskur í 14.920
(17.714) sjóferðum auk þess öfluðust 366
(324) lestir af rækju í 370 (297) sjóferðum
°g 972 (1.351) lest hörpudiskur í 281 (407)
sjóferðum.
Tölur fyrir árið 1973 eru innan sviga.
Afli í einstökum verstöðum:
Hornafjörður. Þar stunduðu 11 (14) bát-
ar veiðar með net og botnvörpu. Aflinn á
tímabilinu var 306 (182) lestir í 34 (38)
sjóferðum.
Hæstu bátar voru:
Lestir. Sjóf.
Hvanney n 45,0 3
Steinunn b 41,0 4
Skinney n 36,0 4
Heildarafli frá áramótum var 3.317 (5.226) lestir í 415 (626) róðrum.
Hæstu bátar á vertíðinni voru:
Lestir. Sjóf.
Hvanney n. b 561,0 52
Sig. Ólafsson n. 1 390,0 51
Eskey n. 1 377,0 55
Skipstjóri á m.b. Hvanney var Einar Björn
Einarsson og var hann einnig með Hvanney
á vetrarvertíð 1972 og 1973. Árið 1972 aflaði
hann 898 lestir og 1973 702 lestir.
Vestmannaeyjar. Þaðan stunduðu 57 bát-
ar veiðar með net og botnvörpu og öfluðu
1.542 lestir í 226 sjóferðum.
Hæstu bátar á tímabilinu voru:
Lestir. Sjóf.
Surtsey b.................... 96,0 2
Kópur n...................... 80,0 11
Sæbjörg n.................... 77,0 6
Heildaraflinn frá áramótum var 17.885
(21.000) lestir.
Hæstu bátar á vertíðinni voru:
Lestir. Sjóf.
Kópur n 974,0 81
Danski Pétur n 916,0 78
Sæbjörg n 843,0 59
Sökum gossins í janúar 1973, dreifðust bát-
arnir á hinar ýmsu verstöðvar, en voru þó
langflestir í Þorlákshöfn. Er talið að heild-
arafli báta frá Vestmannaeyjum á vertíðinni
1973 hafi verið um 21 þús. lestir.
Hæsti Vestmannaeyjabáturinn í fyrra var
með 874 lestir.
Skipstjóri á Kóp var Daníel Traustason.
Stokkseyri. Þar stunduðu 8 (7) bátar veið-
ar, allir með net og öfiuðu 296 (294) lestir
i 51 (43) sjóferðum.
Hæstu bátar á tímabilinu voru:
Lestir. Sjóf.
Lárus Sveinsson n........... 57,0 8
Hásteinn n.................. 56,0 7
Ólafur Magnússon n...... 52,0 7
Heildaraflinn á vertíðinni var 3.700 (4.261)
lest og þar af landað heima 959 lestum.
Hæstu bátar á vertíðinni voru:
ÆGIR — 169