Ægir - 15.06.1974, Qupperneq 26
NÝ FISKISKIP
Guðbjörg ÍS 46
20 marz s.l. kom skuttog-
arinn Guðbjörg ÍS 46 til
heimahafnar sinnar, Isafjarð-
ar. Skipið er 6. skuttogarinn,
sem Flekkefjord Slipp og
Maskinfabrikk smíðar fyrir
íslendinga, og jafnframt sá
síðasti af þeim 6 skuttogurum,
sem samið var um á sínum
tíma. Eigandi togarans er
Hrönn h.f. ísafirði.
1 8. tbl. Ægis 1973 birtist
lýsing af skuttogaranum Guð-
bjarti ÍS 16, sem var annar
í röðinni af „Flekkefjord" -
skuttogurunum. Sú lýsing á
einnig við Guðbjörgu ÍS, þó
með ákveðnum undantekn-
ingum, og verður hér minnst
á helztu atriði sem frábrugðin
eru.
Skipið er 6 bandabilum eða
3,30 m lengra en hinir 5 skut-
togararnir frá ,,Flekkefjord“.
Undir neðra þilfari kemur
stækkun þessi aðallega fram
í lest skipsins, sem er 5 banda-
bilum lengri, en vélarúm
stækkar um 1 bandabil.
Aðalvél skipsins er frá
MAK, gerð 8M 452 AK, 1780
hö. við 375 sn/mín, sem teng-
ist gegnum kúpplingu við
skiptiskrúfubúnað frá Hjelset,
gerð RKT 60/260. Skrúfa
skipsins er 3ja blaða, þvermál
2150 mm. í hinum 5 „Flekke-
fjord“- skuttogurunum var
Wichmann aðalvél, 1750 hö.
við 375 sn/mín.
Breytingar hafa verið gerð-
ar á grandaravindum, þ. e.
tromlur stækkaðar; settur
stærri losunarkrani (3% t) og
einnig hefur verið bætt við 2 t.
kapstan, sem er staðsettur á
hvalbaksþilfari.
Ofangreindar breytingar
á vindu- og losunarbúnaði
voru einnig gerðar á Framnesi
I ÍS og Björgvin EA, sem voru
nr. 4 og 5 af „Flekkefjord“-
skuttogurunum.
ísframleiðsluvél, ísklefi og
ísdreifikerfi (í lest) er frá
Finsam eins og í þeim fyrri,
en ísvélin er afkastameiri en
í fyrstu fjórum skuttogurun-
um. ísvélin er af gerðinni FIP-
10 IM 22 S, samsvarandi og
í Björgvin EA, og afkastar um
10 t á sólarhring. ísklefi hef-
ur verið stækkaður.
Tækjabúnaður í brú er tals-
vert frábrugðinn tækjum
þeim, sem eru í Guðbjarti ÍS.
Helztu tæki eru:
Ratsjár:
Decca RM 926 með 60
sml. langdrægni og
Furuno FRD-50 með 100
sml. langdrægni.
Miðunarstöð:
Taiyo TD-A 130
Loran:
Simrad LC, sjálfvirkur
Loran C
Gyroáttaviti:
Sirius
Sjálfstýring:
Decca, gerð 450 G
Rafmagnslogg:
Bergen Nautik, FDU-2
Dýptarmælir:
Simrad EK 50
Dýptarmælir:
Simrad EK 38
Fisksjá:
Simrad CB 3
Asdik:
Simrad SB 2
Netsjá:
Simrad FB 2 með EX
sjálfrita og FI „trálvakt".
Talstöð:
Sailor T 122/R 105, 400 W
S.S.B.
Örbylgjustöð:
Simrad VHFon, PC 3,
25 W.
Skipstjóri á Guðbjörgu ÍS
er Ásgeir Guðbjartsson og 1-
vélstjóri Steinþór Steinþórs-
son. Framkvæmdastjóri út-
gerðarinnar er Guðmundur
Guðmundsson.
Ægir óskar eigendum svo og
áhöfn til hamingju með skipið.
Forsíðumynd er af Guðbjörgu
ÍS.
Rúmlestatala ....................... 436 brl.
Mesta lengd ...................... 49.85 m
Lengd milli lóðlína .............. 44,00 m
Breidd ............................ 9,50 m
Dýpt að efra þilfari............... 6,60 m
Dýpt að neðra þilfari ............. 4,35 m
Lestarrými.......................... 435 m3
Brennsluolíugeymar.................. 112 m3
Brennsluolíu eða ballestgeymar . . 28 m3
Ferskvatnsgeymar .................... 37 m3
Ganghraði (reynslusigling) ....... 14,5 hn.
180 — ÆGIR