Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 10

Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 10
ir til um, hve mörg prósent af því köfnunar- efni, sem neytt er, verður eftir í líkamanum, en BV (Biological Value) tekur líka tillit til þess að sumt af því köfnunarefni (hvítu), sem neytt er, meltist ekki. BV er mælikvarði á það, hve mörg prósent af því köfnunar- efni, sem melt er og tekið upp af líffærunum verour eftir í líkamanum. Til viðmiðunar um gæði hvítu, er ýmist notuð eggjahvíta (oval- bumen), mjólkurhvíta (kasein) eða listi, sem Matvæla- og landbúnaðarstofnun S. Þ. (FAO) hefur gefið út um amínósýrusamsetningu „óskahvítu“. Dæmigerður hvítumatur eru t. d. egg, kjöt og fiskur. Tafla 2 sýnir aðalefnaflokka og magn nokkurra steinefna og fjörva í dilka- kjöti og hænueggjum. Nokkrum fisktegundum eru gerð nokkru ítarlegri skil í töflum 3 og 4. Tafla 2. Efnainnihald í 100 g af hænueggjum og dilkakjöti (Meðaltöl úr USDA Handbook No. 8; Watts & Meryll 1962. Hvíta Fita Steinefni, mg Fjörvi g g Ca Fe Na A(Ae) Cmg B^mg B2mg Níasin mg Hænuegg 12,9 11,5 54 2,3 12,9 1180 — 0,1 0,3 0,1 Dilkakjöt 15,4 27,1 10 1,1 295 — — 0,14 0,19 4,5 Tafla 3. Aðalefnaflokkar liolds nokkurra nytjafiska. % RDA = hundr- aðshluti af daglegri neyzluþörf. Vatn Orka Hvíta Fita Aska Kolvetni Tegund % h.e. g % RDA g g g Þorskur 81,0 80 18,0 40 0,2 1,2 0 ísa 80,5 80 18,5 40 0,2 1,2 0 Lúða 76,5 120 18,5 40 4,0 1,2 0 Skarkoli 79,0 100 18,0 40 2,5 1,1 0 Langa 79,5 90 19,5 45 0,3 1,1 0 Steinbítur 81,0 90 16,5 35 2,0 1,1 0 Karfi 79,0 100 18,0 40 2,5 1,0 0 Ufsi 80,0 85 19,0 40 0,3 1,2 0 Egg. Egg ganga næst mjólk hvað fjölbreytni næringarefna snertir, enda hvort tveggja ætl- að til vaxtar og viðgangs afkvæma. Engin kolvetni eru í eggjum og ekkert C-fjörvi. 1 rauðunni er fitan, steinefnin og fjörvin. Eggjafitan inniheldur allmikið af kólesteróli, sem talið er geta valdið kransæðastíflu. Kjöt. Niðurstöðurnar í töflunni eru fremur gróf- ar meðallagstölur, enda auðséð að sérstaklega fituinnihaldið er mjög breytilegt eftir því hvaðan kjötið er af skrokknum. Kjöt af öðr- um nytjadýrum er ekki mjög frábrugðið kindakjöti að samsetningu. Svínakjöt er þó í heild mun feitara (bacon t.d. er nær ein- göngu fita og vatn, að jafnaði innan við 5% prótein), en magurt svínakjöt inniheldur mun meira af B-fjörvum sérstaklega níasíni en bæði dilka- og nautakjöt. Járnið í kjötmál- tíð getur numið meira en helmingi þess járns, sem við þurfum daglega, og nokkuð munar um B-fjörvin sérstaklega níasín. Annars er kjöt fyrst og fremst hvítugjafi og í dýrafitu er kólesterólið alltaf varhugaveröur fylgi- fiskur fyrir kyrrsetumann nútímans. Mskur Fiskur er fyrst og fremst hvítugjafi, þó að 184 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.