Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 18

Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 18
Stýrimannaskólanum í Reykjavík sagt npp Stýrimannaskólanum í Reykjavík var sagt upp hinn 18. maí í 83. sinn. Viðstaddir skóla- uppsögn voru margir af eldri nemendum skól- ans. í upphafi ræddi skólastjóri um breytingar á námstilhögun við skólann. Til inngöngu í 1. bekk er nú krafist gagnfræðaprófs eða hliðstæðs prófs. Starfrækt er sérstök undir- búningsdeild fyrir þá sem hafa ekki tilskilinn undirbúning. í þeirri deild eru aðeins kennd- ar 5 námsgreinar: Stærðfræði, eðlisfræði, íslenska, danska og enska. Próf úr 1. bekk veitir skipstjórnarréttindi á fiskiskipum allt að 120 tonnum. Námsefni 2. bekkjar hefur nú verið samræmt fyrir far- menn og fiskimenn þannig að nú fá allir sömu réttindi að loknu prófi 2. stigs, þ. e. full skip- stjórnarréttindi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er og kaupskipum allt að 400 tonnum, ennfremur undirstýrimannsréttindi á kaup- skipum af hvaða stærð sem er. Skipstjórnar- réttindi á fiskiskipum eru þó háð því, að menn hafi tilskilinn siglingatíma á fiskiskipum. Skipstjórnar- og undirstýrimannsréttindi á kaupskipum eru og háð ákvæðum um siglinga- tíma á slíkum skipum. Með þessari breytingu á að verða auðveldara fyrir alla að ljúka prófi 3. stigs, sem veitir full skipstjórnarréttindi. Þá gat skólastjóri þess að aðstaða til tækja- kennslu hefði batnað verulega, eftir að skólinn fékk tækjasal í nýbyggingunni fyrir austan skólann. 1 vetur var haldin deild fyrir skipstjóra - efni á varðskipum ríkisins, eða 4. stigs deild. Sóttu hana 10 menn og luku þeir prófi í jan- úarlok. Hæstu einkunn hlaut Einar Róbert Árnason, 7,26 sem er ágætiseinkunn. Að loknu prófi færð'u þeir skólanum að gjöf fagra myndastyttu. Hefur henni verið komið fyrir á hentugum stað í kennarastofu. Að þessu sinni luku 23 farmannaprófi 3. stigs og 46 annars stigs prófi. Efstur við 3. stigs prófið var Dagþór Sigmar Haralds- son, 7,70 og hlaut hann verðlaunabikar Eim- skipafélags íslands, farmannabikarinn. Efstur við annars stigs prófið var Þórarinn Ólafs- son, 7,84 og hlaut hann verðlaunabikar Öldunnar, Öldubikarinn. Hámarkseinkunn er 8. Bókaverðlaun úr verðlaun- og styrktar- sjóði Páls Halldórssonar, fyrrverandi skóla- stjóra, hlutu eftirtaldir nemendur, sem allir höfðu hlotið ágætiseinkunn: Dagþór Haralds- son, Jens G. Jenson, Jóhann Kiesel, Jón Börk- ur Ákason, Lúðvík Einarsson og Sigurður Bergsveinsson úr 3. stigi, en Árni Sigmunds- son, Guðmundur Kristjánsson, Guðni Einars- son, Helgi Arason, Hreggviður Hreggviðsson, Jóhannes Sigurðsson, Jón Steingrímsson, Sigurður Jónsson, Þórarinn Ólafsson og Þor- steinn Baldvinsson úr 2. stigi. Skipstjórafélag íslands veitti Lúðvík Ein- arssyni bókarverðlaun fyrir hámarkseinkunn í siglingareglum. Skólastjóri ávarpaði síðan nemendur og ósk- aði þeim til hamingju með prófið. Benti hann þeim á ábyrgð og skyldur yfirmanna á skipum. Taldi hann góðar horfur á því, að þeir gætu fljótlega notfært sér þau réttindi, sem þeir hefðu aflað sér með skólaverunni, skipastóll- inn væri í örum vexti og skortur væri á yfir- mönnum á skipum. Hann brýndi fyrir þeim að virða rétt annarra á hafinu og varaði við þeim afleiðingum, sem hlotist gætu af því, ef settar reglur væru ekki í heiðri hafðar. Þá þakkaði hann nemendum samveruna og óskaði þeim farsældar í framtíðinni. Að lokinni ræðu skólastjóra tóku þessir til máls: Jón Eiríksson fyrir sextíu ára prófsveina- Jón Eiríksson, Jón Högnason og Valdimar Guðmundsson gáfu skólanum ljósrit af hand- riti af siglingafræði, hið fyrsta á íslensku. Hana samdi Árni Thorlacius 1843. Ingólfur Möller hafði orð fyrir 40 ára próf- 192 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.