Ægir - 01.07.1974, Blaðsíða 24
NÝ FISKISKIP
Hér birtist lýsing ú tveimur
skuttogurum, byggðum í Pól-
landi, sem nýlega bættust í flota
Reykvíkinga.
Ægir óskar eigendum svo og
áhöfn til hamingju nieð skipin.
Engey RE 1
10. marz s. 1. kom skuttog-
arinn Engey RE 1 til heima-
hafnar sinnar í fyrsta sinn.
Skuttogari þessi er byggöur
hjá Gdynia Shipyard, Gdynia
Póllandi og er 3. skuttogarinn,
sem þar er smíðaður fyrir Is-
lendinga. Tveir þeir fyrstu
voru sem kunnugt er smíðaðir
fyrir Ögurvík h.f., en Engey
RE er sá 1. í röðinni af 5
skuttogurum, sem samið var
um á eftir Ögurvíkur-skut-
togurunum, og hafa verið
gerðar nokkrar breytingar á
umræddum 5 skuttogurum frá
fyrstu tveimur. Engey RE er
eign ísfells h.f.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt skv. reglum
,,Lloyds Register of Shipping"
og flokkað +100 Al, Stern
Trawler, ICE Class 3, + LMC.
Skipið er skuttogari með
tveimur þilförum stafna á
milli og skutrennu upp á efra
þilfar. Undir neðra þilfari er
skipinu skipt með 6 vatns-
þéttum þilum í eftirtalin rúm,
talið framan frá: Stafnhylki
fyrir sjókjölfestu; brennslu-
olíugeymir (hágeymir); véla-
rúm; fiskilest; lifrargeymir og
aftast 2 geymar (skiptigeym-
ar) fyrir brensluolíu eða
sjókjölfestu.
Keðjukassar ganga niður í
stafnhylki, en fremst i véla-
rúmi er stjórnklefi (kontrol-
rum), verkstæði og asdikklefi.
í vélarúmi eru boíngeymar
fyrir brennsluolíu, en undir
fiskilest eru botngeymar
(3x2), s.b,- og b.b.-megin við
öxulgöng, sem liggja eftir
miðju skipinu. Tveir fremstu
geymarnir eru fyrir ferskvatn,
en fjórir öftustu eru skipti-
geymar fyrir brennsluolíu eða
sjókjölfestu.
Fremst á neðra þilfari er
geymsla með lúgu frá aðal-
þilfari, en þar fyrir aftan
íbúðir áhafnar, vélarreisn o. fl.
Aftan við íbúðir tekur við
vinnuþilfar (fiskaðgerð), fisk-
móttaka og stýrisvélarrúm
aftast fyrir miðju. Úti við síð-
ur á vinnuþilfari eru klefar, m.
a. fyrir hafnarljósavél, mat-
væli og varahluti. Til hliðar
við fiskmóttöku og stýrisvélar-
rúm, s.b.- og b.b. megin eru
netagjymslur.
Á efra þilfari, framskips, er
þilfarshús, sem nær út að síð-
um, en þar fyrir aftan er tog-
þilfarið. I þilfarshúsi eru
íbúðir yfirmanna, klefi fyrir
togvindumótor og fleira.
Yfir þilfarshúsi er brú
skipsins, en þar er stýrishús,
klefi loftskeytamanns og sal-
erni.
Vélabúnaður:
Aðalvél er Zcoda-Sulzer,
gerð 6ZB 40/48, 3000 hö. við
485 sn/mín. Vélin tengist nið-
urfærslugir frá Renk, gerð
AUS 80-SO-6, niðurfærsla
2.85:1. Skrúfubúnaður er frá
Liaaen, gerð E95/4-F280,
skrúfan er 4-ra blaða skipti-
skrúfa, þvermál 3400 mm,
snúningshraði 170 sn/mín.
Tveir rafalar frá Emit
tengjast niðurfærslugír gegn-
um kúpplingu, snúningshraði
1000 sn/mín. Fyrir rafkerfi
skipsins er 400 KVA, 3x400
V, 50 Hz riðstraumsrafall, en
fyrir togvindumótor er 350
KW, 320 V, jafnstraumsrafall.
Hjálparvél er frá Caterpill-
ar, gerð D 379, 475 hö við 1000
sn/mín., en við hana tengjast
Rúmlestatala ...................... 742 brl.
Mesta lengd ..................... 60,60 m
Lengd milli lóðlína ............. 53,00 m
Breidd .......................... 11,30 m
Dýpt að efra þilfari.............. 7,30 m
Dýpt að neðra þilfari ............ 5,00 m
Djúprista (KVL) .................. 4,60 m
Særými (djúprista 4.85 m) ........ 1542 t
Burðarmagn ( “ ) ........ 500 t
Lestarrými ........................ 530 m3
Brennsluolíugeymar ................ 145 m3
Brennsluolíu- eða sjókjölfestu-
geymar ............................ 137 m3
Kjölfestugeymar (stafnhylki) . . 14 m3
Ferskvatnsgeymar ................... 57 m3
Ganghraði (reynslusigling) .... 16,2 hn.
198 — Æ GI R