Ægir - 15.03.1975, Side 8
Gunnar Jónsson, fiskifræðingur:
HAF- OG FISKIRANNSÓKNIR
Sjaldséðir
fiskar árið 1974
Eftirfarandi sjaldséðir fiskar bárust Haf-
rannsóknastofnuninni árið 1974:
1. Trjónufiskur — Rhinochimaera atlantica
Holt & Byme
mars—apríl, suður af Selvogsbanka (?),
128 cm, b/v Bjarni Benediktsson RE. Fisk-
urinn kom á Hafrannsóknastofnunina 9. apríl.
9. apríl, suður af Selvogsbankakantinum,
659 m dýpi, 125 cm, b/v Ingólfur Amarson
RE. Fiskurinn kom á Hafrannsóknastofnun-
ina 16. apríl;
17. apríl Grindavíkurdjúp, 586—622 m dýpi,
127 cm, b/v Rauðinúpur ÞH;
9. sept., VSV af Surtsey, 494 m dýpi, 130
cm, b/v Bjarni Benediktsson RE.
Trjónufiskur fékkst fyrst á íslandsmiðum
árið 1957. Síðan hafa nokkrir veiðst á djúp-
miðum S—SV—lands einkum á síðustu árum.
Heimkynni trjónufisks eru í N-Atlantshafi
undan vesturströnd írlands, sunnan og suð-
vestan íslands og við austurströnd Ameríku
undan Nýjaskotlandi og í hlíðum Georgs-
banka.
Trjónufiskur er skyldur geirnyt, en hún
hefur verið talin óæt og jafnvel eitmð af
sumum. Það virðist ekki eiga við um trjónu-
fiskinn því að tveir ofangreindra fiska vom
matreiddir í tilraunaeldhúsi Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins, annar hakkaður í fars
og fiskstauta, hinn soðinn og steiktur og
brögðuðust þeir vel og varð engum meint af.
2 Stóra geirsíli — Paralepis coregonoides
borealis Reinhardt
10. febr., undan sunnanverðum Austfjörð-
um (64°41’N — 11°46’V) dýpi 400 m (tog-
dýpi 150—200 m), r/s Árni Friðriksson, 5
fiskar veiddust 16—23 cm.
Stóra geirsíli er eitt þriggja geirsílisteg'
unda sem fundist hafa hér við land. Hin eru
litla geirsíli og digra geirsíli. Alls þekkjast
um 40—50 tegundir geirsíla í heimshöfunuh1
og þar af munu vera um 15 í NV-Atlantshafi-
Stóra geirsíli hefur auk þess fundist við V'
Grænland, austurströnd N-Ameríku, Noreg.
SV-Bretlandseyja, í Biskayaflóa og undan
V-Afríku. Geirsíli em miðsjávar- og úthafS'
fiskar, sem finnast víða í miklu magni, eink-
um í hitabeltinu.
3 Álsnípa — Nemichthys scolopaceus Ric'
hardson
10. febr., undan sunnanverðum Austfjörð-
um (64°40’N — 11°46’V), dýpi 400 m (tog'
dýpi 150—250 m), r/s Árni Friðriksson. Fisk-
urinn var skemmdur, vantaði framan á trjónu
og aftan á sporð. En það sem náðist var 68
cm langt.
Álsnípa þekkist á íslandsmiðum síðan 1
desomber 1952 að ein veiddist djúpt undan
SA-ströndinni. Árið 1956 veiddist önnur og
þá í Víkurál. Síðan hafa nokkrar veiðst við
S—SA—ströndina. Álsnípa hefur auk þess
fengist undan ströndum N-Ameríku, við AS'
óreyjar, Kap-Verdeeyjar, undan V-Afríku, 1
S-Atlantshafi og í Kyrrahafi við Nýju-GuineU-
4 Broddabakur — Notacanthus chemnitz11
Bloch
apríl, 95 cm, b/v Vestmannaey VE. Engar
frekari upplýsingar.
Broddbakur fannst fyrst hér rekinn á Eyja'
fjallasand árið 1835. Árið 1909 rak annau
við Vestmannaeyjar. Síðan hafa nokkrir
veiðst undan S—SA—ströndinni.
Heimkynni broddabaks em frá íslandsmið'
um til V-írlands, við S-Grænland og á Stóra'
banka við Nýfundnaland.
78 — Æ GIR