Ægir - 15.05.1976, Blaðsíða 24
Davíð Ólafsson
sextugur
Hinn 25. apríl síðastl. varð
Davíð Ólafsson seðlabanka-
stjóri, fyrrum fiskimálastjóri,
sextugur. Mun mörgum raun-
ar finnast það ótrúlegt, að
þessi spengilegi maður, jafn-
léttur í hreyfingum og hann
er, skuli vera orðinn sextíu
ára. Þegar hins er aftur á
móti gætt, hversu lengi hann
hefur verið í forystu ís-
lenzkra þjóð- og atvinnu-
mála, er aldurinn ekki ótrú-
legur.
Davíð er fæddur að Bakka-
gerði, Borgarfirði eystra,
1916, sonur Ólafs Gíslasonar
síðar framkv.stj. í Viðey og
Jakobínu Davíðsdóttur, af
traustum austfirzkum og ey-
firzkum ættum. Hann nam
hagfræði í Þýzkalandi og lauk
prófi 1939.
Á árinu 1940 var hann
kjörinn fiskimálastjóri. —
Gegndi hann því starfi til árs-
ins 1967, að hann var ráðinn
bankastjóri við Seðlabankann.
Jafnframt sat hann á Alþingi
frá 1959 til 1967, fyrst sem
varamaður, en frá 1963 sem
aðalmaður.
Of langt mál yrði að telja
hér upp öll önnur trúnaðar-
störf, sem honum hafa verið
falin á hinum langa starfs-
ferli. Segja má samt, að fátt
hafi gerzt innanlands og er-
lendis á sviði sjávarútvegs-
mála, að hann hafi ekki lagt
þar hönd á plóginn.
Hann átti drjúgan þátt í að
móta störf Matvælastofunar
S. Þ. (FAO) og Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OE-
CD) á sviði sjávarútvegs-
mála. Hann var formaður
sendinefndar íslands á fund-
um NA-Atlantshafsfiskveiði-
ráðsins og forseti þess um
skeið. Einnig var hann fasta-
fulltrúi íslands í Alþjóðahaf-
rannsóknaráðinu frá 1952 og
í stjórn þess um nokkurra ára
bil.
Þessi upptalning verður að
nægja, enda þótt hér sé að-
eins um hluta þeirra mikils-
verðu málaflokka að ræða, er
hann hefur sinnt fyrir sjáv-
arútveginn á erlendum vett-
vangi.
Ótalinn er þáttur hans sem
fiskimálastjóra í þróun ís-
lenzks sjávarútvegs og mark-
aðsmála. Nefna má störf hans
á nýsköpunarárunum, þátt
hans í stofnun og þróun Afla-
tryggingasjóðs. Hann var for-
maður stjórnar sjóðsins frá
upphafi. Störf hans við endur-
skipulagningu haf- og fiski-
rannsókna og rannsókna í
þágu fiskiðnaðarins. Báðaf
þær þýðingarmiklu og blórn-
legu stofnanir, er nú sinna
þessum málum, eru raunar af'
kvæmi Fiskifélagsins. Davíð
var stjórnarformaður beggJ3
þessara stofnana um árabil, og
formaður byggingarnefndar
húss Rannsóknastofnana sjav"
arútvegsins.
Að síðustu vil ég nefna f°r'
göngu hans í útvegun fyrsta
fiskleitartækisins til landsins-
svo og kraftblakkarinnar a
sínum tíma og í framhaldi a
þessu námskeið þau er FisKi'
félagið beitti sér fyrir í með'
ferð fiskleitartækja. Állir
þekkja árangur þessa og Þa
byltingu er varð í tæknibún'
aði fiskiskipa og fiskveiðum
okkar íslendinga. Enn eru P°
ótalin störf hans hjá FisK'
málasjóði og Fiskveiðasjoð1
og raunar mörg önnur trun
aðarstörf.
Ekki verður afmælisbarns
ins minnzt á síðum ÆglS>
án
þess að geta hans ágætu el®
inkonu Ágústu Gísladóttu^
prests að Mosfelli í Gríms^
nesi. Á heimili þeirra ^í°n
höfum við Fiskifélagsmen
átt margar ánægjustun 1 ’
enda gestrisni þeirra og g13^
værð orðlögð. Ágústa er> ^
svo má að orði kveða, ein
okkur. .a
Að lokum vil ég ÞaKn.
Davíð og Ágústu áratuga V1 .
áttu og samvinnu og 1 na ..
stjórnar og starfsfólks lr,s .
félagsins óska afmælisba■
inu og fjölskyldu hans a
heilla.
Már Elísso"-
náttúruauðlindunum jafnframt því að vinna
að því að bæta lífskjörin fyrir þá sem vinna
eða munu vinna að fiskveiðum og fiskvinnslu,
í þeim tilgangi að stöðva fólksflóttann frá
sjávarplássunum meðfram ströndum landsins.
, A aUka
Norðmenn vilja einnig vinna að þvi ao ^
arðsemi fiskveiða og fiskvinnslu og reynanll.
framleiða eins mikið af eggjahvítu til m
eldis og mögulegt er. u
174 — Æ GIR