Ægir - 15.02.1977, Blaðsíða 8
Þorsteinn Gíslason:
Heimsókn í norskar og
danskar fiskmjölsverksmiðjur
Á stjórnarfundi Fiskifélags íslands á s.l.
vori, kom til umræðu rekstrargrundvöllur út-
gerðar á bræðslufisk, orsakir þess mismunar
er ríkti á verði hráefnisins hér á landi og á
Norðurlöndum og afleiðingar hans fyrir hinar
ýmsu gerðir skipa, er stunda fiskveiðar til
bræðslu.
Var ákveðið að fá mann til að kanna í Dan-
mörku og Noregi hvaða orsakir væru lielztar
fyrir bessum mismun, ef sannur reyndist og
ef verða mætti til að leiðrétta og minnka þá
óánægju, sem ríkt hefur með verðlagninguna.
Þorsteinn Gíslason var um þetta leyti á för-
um. til Norðurlandanna. Var hann beðinn að
talca þessa athugun að sér með tilliti til þess
m..a. a.ð hann tilheyrir í raun báðum aðilum,
þ.e. sem fiskimaður og stjórnarmeðlimur hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins.
Við heimkomu sína í byrjun september skil-
aði Þorsteinn skýrslu um. för sína og flutti
stjórn Fiskifélagsins ýtarlega frásögn um at-
huganir sínar. Var hann beðinn að draga
helstu þættina saman í greinarform og birt-
ast þeir liér á eftir.
Ritstj.
I-Ieimsóttar voru sjö fiskmjölsverksmiðj-
ur í Danmörku og Noregi. Hafður var við-
ræðufundur með stjórnum og stjórnendum
verksmiðjanna og dvalið daglang í hverri verk-
smiðju. Viðtökur voru ágætar og fengust skýr
og greinagóð svör.
Það, sem fer hér á eftir er ekki eftir opin-
berum skýrslum, heldur það, sem skrifað var
niður eftir stjórnendum verksmiðjanna og
það, sem gestsaugað sá. Þegar verðlag á hrá-
efni, rafmagni, olíu og kaupi er nefnt, þá er
viðmiðunin eins og það var í júní-júlí og er d.
kr. reiknuð á ísl. kr. 30,00 og n. kr. á ísl. kr.
33,00.
Kannað var sérstaklega:
1. Uppbygging og aldur verksmiðjanna.
2. Stjórnun og daglegur rekstur.
3. Fisktegundir, afköst og árlegur starfstími-
4. Endurnýjun og viðhald.
5. Verð og verðlagning hráefnis.
6. Löndun og löndunaraðferðir.
7. Mönnun: a) við stjórnun, b) í verksmiðju-
8. Sjálfvirkni.
9. Kaupgjald.
10. Verðlag á orku: a) olíu, b) rafmagni.
11. Nýting: a) mjöl, b) lýsi.
12. Geymsla hráefnis.
13. Geymsla og afhending á mjöli.
14. Meðferð og varðveisla hráefnis.
15. Mat á hráefni.
16. Þurrkunaraðferðir mjöls. Laust, sekkjað
og kögglað mjöl.
Danmörk
Fyrsta verksmiðjan, sem var heimsótt, var
Andelsildoljefabrik í Esbjerg, og má nota
hana fyrir samnefnara margra annarra 1
Danmörku. Verksmiðja þessi er 27 ára gömul-
Eigendur eru um 200 útgerðarmenn og skip'
stjórar.
Stjórnarformaður er Aage Fris SörenseU
skipstjóri, verksmiðjustjóri K. Korsager,
verkfræðingur, og framkvæmdastjóri J. JeU'
sen. Þessir þrír menn vinna á staðnum og
fylgjast náið með hinum daglega rekstri-
Sögðust þeir kanna hag verksmiðjanna ná-
kvæmlega hvern mánuð og lægi uppgjör
frammi þrem dögum eftir mánaðamót. Starfs-
tími er allt árið og afköst þessarar verk-
smiðju 3000 tonn á sólarhring. Tóku þeir á
42 — Æ G IR