Ægir - 15.02.1977, Blaðsíða 17
bessi fyrirgreiðsla hófst, og takmörkuð hjá
estum hinna, en þessum lausaskuldum var
um svipað levti breytt í föst skammtímalán,
raunar í öllum sjávarútveginum. Greiðslubyrð-
m af þessum lánum fer nú að segja mjög til
Sln og virðist augljóst, að sérstakra ráðstaf-
ana se þörf hennar vegna.
Eins og fyrr greinir var aflamagnsmunur
einstakra skipa mjög mikill á seinasta ári. En
a þvi er þó sú bjarta hlið að 5 af 17 hinna
stærri togara öfluðu meira en 4 þús. tonn og
sa hæsti, Ögri, hafði þó farið 4 söluferðir til
retlands og Þýzkalands og þar með hafa
Veiðidagar hans skerzt um allt að 1/12. Síðan
skuttogararnir komu til landsins hefir það
e^ki fyrr gerzt, að afli neins þeirra næði 4
P^s. tonnum, nema einu sinni, er Ögri fékk
rum 4700 tonn, en í þessu sambandi verður
P° að ha.fa verkföllin í huga. Þetta er svo sem
enginn mokafli, þegar litið er til hinnar miklu
atkastagetu þessara stóru og vel búnu skipa.
Meðalafli
stærri skuttogaranna á úthalds-
ag 1976 nam 10,4 tonnum, en hinna minni
skuttogara 8,4 tonnum og er það nánast hið
sama og 1975.
Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags
slands nam afli stóru togaranna 1976 um
•500 tcnnum, ef miðað er við óslægðan fisk.
, f þessu aflamagni voru 21.800 tonn karfi,
I ar af var tæplega 1300 tonnum landað er-
endis, en hitt fór til vinnslu í frystihúsum
"er heima.
Landað magn ísfisks erlendis jókst talsvert
'Laianu> enda hafði löndunarbann í Þýzkalandi
, m leitt til þess, að enginn fiskur var seldur
. r þuð ár fyrr en kom fram í nóvember, en
a sama hátt var engum fiski landað í Bret-
^anrl1 frá 5. nóvember 1975 þar til 7. október
6 vegna löndunarstöðvunar hafnarverka-
anna þar. Og ísfisklöndunum var hætt 1.
^esember þar eð ekki þótti á þær hættandi
Sna brottfarar allra brezkra togara úr ís-
enzku fiskveiðilandhelginni þann dag.
iq7 ls. ^nru stóru togararnir 27 söluferðir
6 til Bretlands og Þýzkalands og seldu þar
4,263,9 tonn (1.912,4 tonn 1975) fyrir 446
millj. kr. Er hér um að ræða slægðan fisk
með haus, nema karfa, sem ætíð er óslægður.
í Bretlandi voru seldir 4 farmar, alls 571,5
tonn fyrir 87,5 millj. kr.
í V-Þýzkalandi voru seldir 23 farmar, alls
3.692,4 tonn fyrir 358,5 millj. kr.
Þá seldi einn togari fiskfarm í Færeyjum
seint í febrúarmánuði, vegna verkfalla hér ú
landi, alls 140,1 tonn fyrir 8,1 millj. kr.
Allur samanburður á verði á erlendu mörk-
uðunum er mjög torveldur vegna löndunar-
banna, gengishreyfinga og einnig þess, að
nokkrar söluferðir voru farnar í neyð vegna
verkfalla, sem ella hefðu ekki verið farnar, þar
sem markaður var fyrirsjáanlega mjög slak-
ur, þó ber þess að geta, að verðlag í Þýzka-
landi hækkaði talsvert seinustu tvo mánuði
ársins og verðlag í Bretlandi stórhækkaði frá
því sem áður hafði verið.
Horfur á árinu 1977 eru afar tvísýnar. Ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar vegna stóru tog-
aranna, sem áður er getið, gilda til 15. maí.
Það er alls óvíst, hvað þá tekur við, en eitt-
hvað verður að koma í stað framlengingar
stofnlána og áður var minnst á vandann, sem
bundinn er við greiðslur á skammtímalánum
þeim, sem lausaskuldum var breytt í. Loks
ber að geta þess, að kjarasamningum sjó-
manna, jafnt háseta sem yfirmanna, hefir nú
verið sagt upp. Engar viðræður hafa enn far-
ið fram, en það verður að vona að farsæl lausn
fáist á hugsanlegum kjaradeilum svo og hin-
um öðrum vandamálum, sem við blasa.
Leiðrétting: Línudeilan vestra
1 fréttayfirlitinu í nóvember í haust um
lausn á línudeilunni vestra átti frásögnin um
skiptakjörin aðeins við um eina verstöð.
Reyndin mun hafa orðið sú, að menn leystu
deiluna með mismunandi hætti í verstöðvun-
um.
ÆGIR — 51