Ægir - 15.02.1977, Side 18
NÝ FISKISKIP
Hafsúlan SH 7
28. janúar s.l. afhenti Skipa-
smíðastöðin Dröfn h.f. í Hafn-
arfirði nýtt 37 rúmlesta eik-
arfiskiskip, sem er nýsmíði nr.
36 hjá stöðinni, og hlaut skip-
ið nafnið Hafsúlan SH 7. Eig-
andi skipsins er Halldór S.
Sveinsson, Reykjavík og er
hann jafnframt skipstjóri.
Fremst í skipinu, undir þil-
fari, er lúkar en þar fyrir aft-
an fiskiiest og vélarúm aftast.
Fremst í fiskilest er fersk-
vatnsgeymir og keðjukassi, en
brennsluolíugeymar eru í véla-
rúmi. Vélarreisn og þilfarshús,
aftarlega á skipinu, eru úr áli.
Aðalvél skipsins er Cater-
pillar, gerð D 343 TA, sex
strokka f jórgengisvél með
forþjöppu og eftirkælingu,
sem skilar 365 hö við 1800
sn/mín. Við vélina er niður-
færslugír frá Twin Disc, gerð
MG 514, niðurfærsla 4,5:1, og
skrúfubúnaður frá Newage
Engineers (Propulsion).
Skrúfa er 4ra blaða með fastri
stigningu (1016 mm), þver-
mál 1270 mm.
Framan á aðalvél er aflút-
tak frá Marco, gerð DC 01-2-P
H1-C2 (1:1) og við það tengd
vökvaþrýstidæla frá Denison,
sem er fyrir vindur skipsins.
Dælan er af gerðinni TDCB
202206, þreföld, og skilar um
130 1/mín við 1000 sn/mín og
140 kp/cm2 þrýsting. Við að-
alvél tengist einnig rafall frá
Alternator h.f., gerð A0, 7.0
KW, 24 V. Hjálparvél er
Bukh, gerð 2 G 105, 25 hö við
1500 sn/mín, og við hana teng-
ist rafall frá Alternator h.f.,
gerð A0, 7.0 KW, 24 V. Á
hjálparvél er einnig vökva-
þrýstidæla fyrir færavindur.
Stýrisvél er frá Scan Steering,
gerð MT 1000, rafstýrð og
vökvaknúin, snúningsvægi
1000 kpm.
Fyrir vélarúm og loftnotk-
un véla er einn rafdrifinn
blásari. Rafkerfi skipsins er
24 V jafnstraumur fyrir
flesta rafnotendur, þó ekki
kælibúnað fyrir matvæli, sem
er á 220 V riðstraum um
straumbreyti. Upphitun er
með olíukyntri miðstöð (elda-
vél) í lúkar, en í þilfarshúsi
eru rafmagnsofnar. Fyrir
hreinlætisaðstöðu (salerni o.
fl.) er vatnsþrýstikerfi frá
Bryne Mek. Verksted af gerð-
inni 1134. Fyrir fiskilest er
kæliþjappa af gerðinni Bitzer
III W, afköst 2580 kcal/klst
við -10°C/—/ + 25°C, kæli-
miðill er Freon 12.
í lúkar eru sex hvílur og
eldunaraðstaða, olíukynt Sólo
eldavél, kæliskápur og frysti-
skápur. Þilfarshús skiptist i
stýrishús fremst en aftantil er
skipstjóraklefi með einni
hvílu og salernisklefi.
Síður fiskilestar eru klædd-
ar með vatnsþéttum krossviði,
en lestin óeinangruð nema þil,
sem eru einangruð vélarúms-
og lúkarsmegin. Lestarstoðir
eru úr stáli en stíu- og hillu-
borð úr áli. Lestargólf er úr
áli. Lestin er kæld með kæli-
leiðslum í lofti lestar.
Vindur eru vökvaknúnar
(háþrýstikerfi) frá Vélaverk-
stæði Sig. Sveinbjörnssonar
h.f. og er um að ræða tog-
vindu, línuvindu, akkeris- og
bómulyftivindu, losunarvindu
og bómuvindu. Togvinda er af
„7 t gerð“ með tveimur tog-
tromlum (212 mm0x82O mm0x
500 mm) og kopp, knúin af
Hágglunds hæggengum vökva-
þrýstimótor, gerð 2165, með
tveggja hraða ventli. Við
lægra hraðastig er togátak
vindu á miðja tromlu um 3.1 t
og tilsvarandi vírahraði 50 m/
mín miðað við 140 kp/cm2
þrýsting og 125 1/mín oliu-
streymi. Miðað við eðlilega
tromlufyllingu taka togtroml-
ur um 560 faðma af 1%" vír.
Línuvinda er af gerðinni HN
200, 2.0 t; akkeris- og bómu-
lyftivinda af gerðinni HL 200
K, 2.0 t, búin frákúplanlegri
tromlu, keðjuskífu og kopp;
losunarvinda er af gerðinni
HL 200, 2.0 t og bómuvinda
af gerðinni HB 50, 0.5 t. Færa-
vindur eru vökvadrifnar af
gerðinni Elektra Hydro, og
eru 9 talsins.
Helztu tæki í stýrishúsi eru:
Ratsjá:
Kelvin Hughes 18/12,
64 sml.
Seguláttaviti:
Lilley &Gillie.
Sjálfstýring:
Cetrek Pilot 701.
Vegmælir:
Emi.
Miðunarstöð:
Taiyo TD-A 130.
Mesta lengd..................... 18.52 m
Lengd milli lóðlína ............ 16.75 m
Breidd (mótuð) .................. 4.64 m
Dýpt (mótuð)..................... 2.20 m
Brennsluolíugeymar ............... 4.0 m:!
Ferskvatnsgeymir ................. 0.6 m:!
Rúmlestatala ....................... 37 brl
Skipaskrárnúmer ............... 1470
52 — Æ GIR