Ægir - 15.02.1977, Qupperneq 24
Loðnuveiðarnar 1977
Tímabilið frá 2. jan.—29. jan.
Vikan frá 2. jan. til 8. jan.
Rannsóknaskipin m/s Bjarni Sæmundsson,
leiðangursstjóri Hjálmar Vilhjálmsson, og
m/s Árni Friðriksson, leiðangursstjóri Eyjólf-
ur Friðgeirsson, héldu til loðnuleitar frá
Reykjavík 2. jan. M/s Árni Friðriksson hélt
á miðin við Kolbeinsey og leitaði þar loðnu-
göngunnar, sem loðnuskipin voru að veiða
úr fyrir jól og síðan leitaði skipið austur
og suður með landinu.
M/s Bjarni Sæmundsson hélt hins vegar á
miðin úti af norðanverðum Vestfjörðum og
mun leita þar og reyna að fá úr því skorið
hvort loðnan gengur þaðan og suður með Vest-
fjörðum til hrygningar við Snæfellsnes og
Faxaflóa, áður en loðnuveiðar hefjast almennt
á þeim slóðum úr þeim göngum er komnar
eru austan að.
Nokkur loðnuskip héldu samtímis rannsókn-
arskipunum á miðin og vitað var um að mjög
mörg veiðiskip voru tilbúin til að láta úr höfn
strax og fréttist af loðnu.
Aðfaranótt hins 4. jan. fann aflaskipið
Gísli Árni RE 375 fyrstu loðnutorfu vertíðar-
innar 40 sml. NA af Kolbeinsey. Ekki tókst að
veiða loðnuna vegna þess að hún stóð mjög
djúpt og eins vegna þess að mjög bjart var
af tunglsljósi. Nokkur skip er komin voru á
miðin og voru þarna að leit ásamt rannsókn-
arskipinu Árna Friðrikssyni komu þegar á
vettvang.
Að kveldi hins 4. jan. fékk Sæbjörg VE 56
fyrstu loðnu vertíðarinnar eða um 100 tonna
kast um 40 sml. NNA af Kolbeinsey. Aðfara-
nótt hins 5. jan. íengu svo Eldborg GK 13,
Hilmir SU 171, Gísli Árni RE 375 og Sæbjörg
VE 56 flest íullfermi, er þau lönduðu hinn 5.
jan. á Siglufirði og Raufarhöfn.
En fyrstu loðnuna í fyrra fékk Eldborg GK
13 þ. 16. jan. í flotvörpu, um 30 tonn, 50 sjó-
mílur norður af Langanesi. Fyrstu loðnunni
58 — ÆGIR
var þá landað á Raufarhöfn þann 17. janúar.
Verolagsráð sjávarútvegsins ákvað hinn 5.
jan. verð á loðnu til bræðslu og gildir það til
30. apríl n.k. Verðið var ákveðið 6.00 kr. pr.
kíló rniðað við 8% fituinnihald og 16% fitu-
frítt þurrefni. Verðið breytist um 52 aura til
hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem
fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlut-
fallslega fj'rir hvert 0.1%. Verðið breytist um
60 aura til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert
1% sem þurrefnismagn breytist frá viðmiðun
og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Auk þess
greiðir kaupandi 18 aura per kíló í loðnu-
flutningasjóð.
Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn
hvers loðnufarms skal ákveðið af Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins eftir sýnum sem tek-
in skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips
og fulltrúa verksmiðju, eftir nánari fyrirmsel-
um Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Loðnuverðið var ákveðið af oddamanni og
fulltrúum kaupenda í verðlagsráði gegn at-
kvæðum seljanda.
í vikulokin þ. 18. jan. höfðu 19 skip fengið
afla samtals 9.620 lestir og veiðisvæðið var um
40 sml. NA af Kolbeinsey, en á sama tíma í
fyrra hafði engin loðna veiðst. Engar fregnii'
bárust frá rannsóknarskipinu Bjarna Sse-
mundssyni af loðnuleit úti af Vestfjörðum-
Loðnunefnd tók til starfa strax upp úr ára-
mótum. í nefndinni eru nú Gylfi Þórðarson
forrnaður, Andrés Finnbogason og Björgvin
Torfason.
Vikan frá 9. jan. til 15. jan.
I byrjun vikunnar var vitað um 30 skip ei’
komin voru á miðin. Loðnugangan gekk
hægt austur á við og veiðisvæðið 40—80 sml-
NA af Kolbeinsey, og samkvæmt frétt frá
rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni virtist
J