Ægir - 15.02.1977, Qupperneq 26
Vikan frá 23. jan. til 29. jan.
Góð veiði var mánudaginn 24. jan., en þá
fengu um 50 skip góðan afla um 70 sml. NA
af Glettinganesi, samtals um 17.070 lestir.
Mjög slæmt veður var dagana 25. og 26. jan.
og öll skip í höfn. Þá urðu stórfelldar raf-
magnstruflanir á Austfjörðum og stöðvaðist
öll bræðsla á svæðinu frá Neskaupstað til
Djúpavogs í allt að tvo sólarhringa.
1 vikunni var hafin móttaka á loðnu hjá
Hafsíld h/f á Seyðisfirði og búist var við að
bræðsla hæfist þar eftir nokkra daga, því þá
yrði uppsetningu á nýjum gufukatli lokið.
En eins og áður hefur verið sagt frá sprakk
gufuketill verksmiðjunnar í desembermánuði
sl. Seinnipart vikunnar brældi aftur, og laug-
ardaginn 29. jan. voru öll skip í landvari og
enginn afli tilkynntur þann dag.
Verðlagsráð tilkynnti verð á loðnu til fryst-
ingar 26.00 kr. pr. kg. og ennfremur 12.00 kr. á
loðnu til beitu. í vikulokin voru allar þrær
fullar á Austfjörðum og nokkur löndunarbið.
í vikulokin var fyrsta loðnugangan um 60—
70 sml. austur af Norðfjarðarhorni og gekk
hægt suður með landinu.
Á miðnætti laugardaginn 29. jan. var vitað
um 61 skip er fengið höfðu einhvern afla.
Vikuaflinn varð samtals 30.966 lestir og heild-
araflinn frá vertíðarbyrjun samtals um
105.810 lestir. Á sama tíma í fyrra var vitað
um 61 skip er fengið hafði afla og þá var
heildaraflinn samtals 54.809 lestir.
Aflahæstu skipin frá vertíðarbyrjun voru
í vikulokin:
1. Grindvíkingur GK 606, með 4.806 lestir.
Skipstjóri Björgvin Gunnarsson.
2. Guðmundur RE 29 með 4.686 lestir. Skip-
stjóri Hrólfur Gunnarsson.
3. Sigurður RE 4 með 4.593 lestir. Skip-
stjórar: Haraldur Ágústsson og Kristbjörn
Árnason.
4. Börkur NK 122 með 4.539 lestir. Skip-
stjórar: Sigurjón Valdimarsson, Magni Krist-
jánsson.
5. Eldborg GK 13 með 4.390 lestir. Skip-
stjóri: Gunnar Hermannsson.
6. Pétur Jónsson RE 69 með 4.305 lestir.
Skipstjóri: Pétur Stefánsson.
7. Gísli Árni RE 375 með 4.243 lestir. Skip-
stjórar: Sigurður Sigurðsson, Eggert Gíslason.
8. Hilmir SU 171 með 4.016 lestir. Skip-
stjóri: Þorsteinn Erlingsson.
Frá byrjun vertíðar til miðnættis laugar-
daginn 29. jan. hafði loðnu verið landað á 14
stöðum og mest landað á eftirtöldum höfnum:
Samtals
lestir
1. Seyðisfirði 18.875
2. Siglufirði 17.420
3. Neskaupstað 13.750
4. Raufarhöfn 13.716
5. Vopnafirði 13.271
6. Eskifirði 9.035
Það skal tekið fram að allar tölur er hér
birtast eru bráðabirgðatölur. — G.I.
60
Æ G IR