Ægir - 01.09.1977, Qupperneq 12
Davíð Ólafson:
Brennandi í andanum
Hann var brenn-
andi í andanum,
Matthías Þórðarson
frá Móum, sem
hleypti þessu riti af
stokkunum á miðju
ári 1905. Má sjá það
af því, sem hann
ritar í ávarpsorðum
sínum til lands-
manna, að honum
var mikið í mun að
koma þeim boðskap á framfæri hver nauðsyn
væri á því að fræða þá, sem við sjávarútveg
fengjust, sem mest um allt það, sem verða
mætti atvinnuveginum til þrifa og framfara.
Það má raunar teljast til ótrúlegrar bjart-
sýni á þeim tíma að hefja útgáfu tíma-
rits um sjávarútvegsmál, þegar segja má, að
nútíma fiskveiðar hafi verið hér á frumskeiði,
rétt þegar vélaöldin var að hefja innreið sína.
En þetta reyndist tímabært brautryðjenda-
starf, því þó útgáfan félli niður í tvö ár telst
það varla meira en til byrjunarörðugleika og
á þessu ári er sjötugasti árgangurinn að koma
út, og engin ellimörk á ritinu.
Fyrstu fimmtíu árin var Ægir mánaðarrit,
en þegar svo réðst frá ársbyrjun 1955, að ég
tæki við ritstjórninni voru uppi ráðagerðir uin
að láta hann koma út oftar til að mæta ki°
um tímans um örari fréttamiðlun. Niðurstao ^
varð sú, að síðan hefir Ægir komið út há s
mánaðarlega.
Það efni, sem Ægir hefur flutt lesendurn S1
um í sjötíu árgöngum hefur verið margvis e§
og hefur náð yfir öll svið sjávarútvegsmája P ^
skýrslur og tölulegar upplýsingar um sjav
útveginn hafi verið þar fyrirferðarmestar.
Eitt er þó það efni, sem gengur eins ^
rauður þráður gegnum ritið allt frá þv1
Matthías Þórðarson minntist á það í sin gr
ávarpsorðum, en það er landhelgismálið-
ánægjulegt til þess að vita, þegar litið er a P
aldahvörf, sem orðið hafa í framvindu P ^
máls á undanförnum áratugum og l°hs ,jr
fullri viðurkenningu á yfirráðum íslands y
200 mílna fiskveiðilögsögu, að þetta tirnn u
skuli hafa átt sinn þátt í þeirri heillavæ11
Þróun- , írna-
Sjötíu árgangar er langur tími mælt i .
ritsævi og ekki síst þegar um er að ræða ^
tímarit. Fiskifélagi Islands er sómi að i)vn. iU
hafa, þegar við stofnun, tekið við mfr ppi
af Matthíasi Þórðarsyni og haldið ÞV1 ,
alla tíð síðan og á þessum tímamótum 1 ^
gáfu Ægis færi ég honum bestu óskir°^a
hann megi framvegis, eins og hingað ti,
íslenskum sjávarútvegi þarfur þjónn.