Ægir - 01.01.1979, Side 57
drifin loftþjappa frá Hamworthv. gerð 2 SF 3. afköst 39
klst við 30 kp cm- þrýsting. ein rafdrifin loftþjappa
frá Worthington Sinrpson. gerð KH 23, afköst 50 m' klst
'ið 30 kp cm: þrýsting, og auk þess ein minni þjappa
fyrir daglega notkun. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla
eru tveir rafdrifnir blásarar.
Rafkerfi skipsins er 415 V riðstrumur. 50 Hz, fyrir
stærri rafmótora og meiriháttar tæki en 240 V rið-
straumur fyrir lýsingu og minni rafmótora. f skipinu
er landtenging. Fyrir togvindu er Ward - Leonard
jafnstrauniskerfi.
Fyrir geyma skipsins er tankmælikerfi. í skipinu er CO2
slökkc ikerfi. Upphitun í íbúðum er með miðstöðvarvatni
frá katli. Loftræsting er með rafdrifnum blásurum. í
skipinu eru tvö vatnsþrýstikerfi frá Godwin fvrir hrein-
lætiskerfi, annað fyrir ferskvatn. 300 1 geymir. og hitt
sjó, 120 1 geymir.
Fyrir vökvaknúnar vindur eru tvær áðurnefndar vél-
knúnar dælur frá Brusselle og fyrir fiskilúgu er ein
rafknúin vökvaþrýstidæla. Ein rafknúin vökvaþrýstidæla
er fyrir stýrisvél. Ekkert lestarkælikerfi er í skipinu. en
fyrir matvælakæliklefa er sjálfstætt kælikerfi.
íhúðir:
I íbúðarými b.b.-megin á neðra þilfari eru fremst
fjórir 2ja manna klefar. þá borðsalur fyrir yfirmenn,
e'dhús, borðsalur fyrir áhöfn. einn 2ja manna klefi og
aftast snyrting með tveimur salernis- og tveimur sturtu-
klefum. í íbúðarými s.b.-megin á neðra þilfari er fremst
matvælageymsla, kæliklefi og ókæld geymsla með frysti-
k>stu. en þar fyrir aftan tveir 2ja manna klefar, einn
e|ns-manns klefi fyrir 1. vélstjóra, einn 2ja manna klefi
°g aftast snyrting með salernisklefa og sturtuklefa.
I íbúðarhæð, undir brú, er íbúð skipstjóra, sem er
svefnklefi, setustofa og snyrting, tveir eins-manns klefar
°g_snyrting nteð salernisklefa og sturtuklefa.
Ibúðir eru einangraðar með 50 mm glerull og klæddar
með plasthúðuðum plötum. Snyrtiklefar eru óeinang-
raðir.
Vinnuþilfar. fiskilest:
Framan við skutrennu er vökvaknúin fiskilúga, sem
veitir aðgang að fiskmóttöku aftarlega á neðra þilfari.
Tvískipt hlið lokar skutrennu.
Frá fiskmóttöku er fiskurinn fluttur með færibandi
fram eftir fismóttökugangi að vinnuþilfari fremst á neðra
þillari. Vinnuþilfar er búið aðgerðarborðum, færi-
böndum og fiskþvottakari.
Fiskilest er búin áluppstillingu. Lestin er einangruð
með polyurethan og klædd með áli. Ein stór lúga, 6.7x1.2
m. er að fiskilest með tréhlerum, auk þess er ein minni
lúga. Losun er um samsvarandi lúgur á efra þilfari,
upp af lestarlúgum á neðra þilfari, framan við yfir-
byggingu.
Vindubúnaður:
Togvindan er. eins og fram hefur komið, staðsett
einni hæð fyrir ofan togþilfarið. Vindan er frá J. Robert-
son & Sons og er búin tveimur togtromlum, sem hvor
tekur um 1250 faðma af 3 1/4“ vír, tveiniur hjálpar-
tromlum fyrir hífingar og tveimur tvöföldum koppum á
endum. Vindan er knúin af 300 ha, 650 sn mín Lawrence
Scott jafnstraumsmótor.
Fyrir grandara og bobbinga eru fjórar vökvaknúnar
hjálparvindur frá Brusselle, tvær hvoru megin við þil-
farshús. Grandaravindur eru af gerð HHL 6, togátak 6 t.
en bobbingavindur af gerð HHI. 4, togátak 4 t.
Framarlega á efra þilfari er rafdrifin akkerisvinda frá
Gemmel & Frow með einni keðjuskífu og tveimur
koppum.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl.:
Af helztu tækjum í stýrishúsi má nefna:
Ratsjá: Tvær Decca RM 326, 48 sml.
Seguláttaviti: Spegiláttaviti í þaki.
Gyroáttaviti: Microtecnica, Sirius.
Sjálfstýring: Decca Pilot 550.
Vegmælir: Bergen Nautik.
Loran: Decca DL 91 MK2, sjálfvirkur loran C
móttakari, með Decca skrifara.
Dýptarmælar: Tveir Elac LAZ 17.
Fisksjá: Elac.
Talstöð: Redifon, simplexstöð (í loftskeytaklefa).
Örbylgjustöð: Redifon GR 470.
Örbylgjustöð: Sailor RT 144.
Auk áðurnefndra fjarskiptatækja eru fullkomin loft-
skeytatæki í skipinu. Af öðrum tækjabúnaði má nefna
Redifon kallkerfi. Aftast í stýrishúsi eru stjórntæki
fyrir togvindu (togtromlur og hífingatromlur). Átaks-
mælar eru fyrir togvíra frá Humber St. Andrews.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna: Tvo 20
manna gúmmíbjörgunarbáta, einn slöngubát, auk neyð-
artalstöðvar.
ÆGIR — 45