Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1979, Page 11

Ægir - 01.06.1979, Page 11
Tölvuvæðing í hraðfrystiiðnaði ^r- Rögnvaldur Ólafsson: Rafvogir og skrán- jngartæki fyrir Inngangur. í þessari grein verður fyrst rætt nokkuð um hönnun Raunvísindastofn- unar Háskólans á raf- eindabúnaði fyrir frysti- hús. Þá verður stuttlega skýrður sá búnaður sem notaður er, þ.e. rafeinda- vogir og örtölvur og hveijir eru kostir hans og gallar. Að lokum verður sagt frá þeim vogum, sem smíð- reynslu sem af þeim hefur ,tasP'ega eins árs skeið hefur verið unnið á tcekj- VSln^astofnun Háskólans að smíði rafeinda- se^ au»r’r ffy^tihús. Takmarkið var að búa til tæki Hð v Ve'ðuðu vigtun og gagnavinnslu í húsunum. Voru ar°. ffjótt ljóst að það sem erfiðast var að fá húsi eVn°^'r Sem Þyldu vera staðsettar í frysti- frystihn Ve8na bleytu, salts og mikils álags verða te^ast vera raftækjum erfiðari en flest undirst1»nat5arflnsnæði. Þar sem góðar vogir eru ákveðið an un(ftr gagnasöfnun í frystihúsum var við h- byrja á að smíða rafeindavogir. Vinna nnun °g smíði voganna hófst sumarið 1978 trystihús aðar hafa íengist. og hafa nú verið smíðaðar tvær vogir og reyndar í frystihúsum, 1000 kg innvigtunarvog fyrir Meit- ilinn hf. í Þorlákshöfn og 12 kg borðvog eða pökkunarvog fyrir Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. Báðar hafa þessar vogir verið í notkun um nokkurt skeið og árangur verið það góður að nú er verið að smíða töluverðan fjölda í viðbót sem reyndur verður á nokkrum stöðum á landinu í sumar. Svo sem fyrr segir eru vogirnar undirstaðan undir skráningarkerfi húsanna, því lítið gagn er í að skrá frá lélegum og óáreiðanlegum vogum. Þegar ljóst var að vogirnar myndu verða nothæfar, var hafist handa um að hanna önnur skráningar- tæki og gagnavinnslutæki. Fyrst var hönnuð svo- nefnd millivog fyrir skipt kerfi, en það er vog sem vigtar frá snyrtiborðum inn í pökkun. Þessi vog vigtar ekki aðeins, heldur má einnig skrá inn á takkaborð, sem fylgir henni, upplýsingar um hrá- efnið og vinnsluna og tengir vogin þær upplýsingar við vigtina og sendir síðan gögnin til tölvu, skrán- ingarstöðvar eða prentara. Millivogin er nú að mestu tilbúin og verður reynd á Húsavík í sumar. Þótt gögnin frá millivoginni séu tilbúin til tölvu- vinnslu er mjög æskilegt að geta leiðrétt þau og frumunnið í húsinu sjálfu jafnóðum. Þetta verður gert með svonefndri safnstöð, en það er tölva sem tekur við gögnum, bæði frá millivoginni og pökk- unarvogunum, og reiknar út nýtingu, afköst og fleira. Einnig er hægt að leiðrétta rangar skrán- ingar. Þótt þarna sé um tölvu að ræða mun safn- stöðin miklu frekar koma fram sem skynsamt tæki en tölva og verður væntanlega bónusskráningarfólki til allmikils hagræðis. Vinna við safnstöðina er vel á veg komin og verður fyrsta stöðin reynd með millivoginni á Húsavík í sumar. Að fengnum vogum, millivog og safnstöð má segja að einungis vanti tímaskráningarkerfi til þess að allar þær upplýsingar sem þarf til bónusreikn- ÆGIR — 327

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.