Ægir - 01.06.1979, Side 16
af vogum, 1000 kg innvigtunarvog, 12 kg borða-
vog og 30 kg millivog. Tveimur fyrstu verður nú
lýst nokkru nánar.
Innvigtunarvog
Þessi vog er pallvog með fjórum þannemum og
vigtar tonn. Pallurinn er 120 x 120 cm og er vogin
ætluð til þess að vigta 700 lítra stál fiskikassa.
Hún er notuð til þess að vigta af flokkunar-
bandi inn á flökunarvélar eða geymslu en mætti
eins vel nota t.d. til þess að vigta upp úr bátum.
Auk vigtar skráir rafbúnaðurinn fisktegund (16
möguleikar), stærðarflokk (4 stærðir) og vinnslu-
leið (16 leiðir). Hverri skráningu er stjórnað með
einum takka og færist skráningin fram um einn í
hvert sinn sem ýtt er á hann. Á voginni er að
auki núllstilling og útprentunartakki. Vigtin ersýnd
með rauðum ljósstöfum á þriggja stafa skjá, en
upplausn og nákvæmni er um 1 kg. Við vogina er
tengdur prentari og þegar ýtt er á prenttakkann
er skráð á pappírsstrimli fisktegund, stærðar-
flokkur, vinnsluleið og aflestur af vigt. Dæmi um
skráningu má sjá á mynd 4. í stað prentara má
tengja vogina við safnstöð sé hún fyrir hendi. Með
öðrum kraftnemum og minni palli mætti nota þessa
vog sem innvigtunarvog á flökunarvélar með há-
marksþunga 200 kg.
Innvigtunarvogin hefur verið notuð í fiskmót-
tökunni í frystihúsi Meitilsins í Þorlákshöfn síðan
snemma í febrúar. Fram til þessa hefur hún verið á
gólfi en vegna vatnselgs og þrifnaðar verður hún
nú hækkuð upp um 30-50 cm. Að öðru leyti hefur
allt gengið vel og engu þurft að breyta.
Vog sem þessi getur verið kjarninum í einfaldri
nýtingarmælingu á flökunarvélum. Tuttugu kíló-
gramma flakabakkarnir eru þá taldir og flaka-
þyngdin borin saman við útprentunina frá inn-
Mynd 3. Vogarpallur með einum kraftnema. K. kraftnemi;
S. stopp.
vigtunarvoginni. Kerfið má síðan endurbæta meú
því að nota rafvog með skráningu til útvigtunat-
Síðasta skrefið yrði síðan að tengja báðar vogirnar
við safnstöð, sem annaðist útreikninga á inn- °?
útvegnu magni og nýtni.
Borðavog
Borðavogin er ætluð til almennrar vigtunar og
einnig vigtunar í ákveðnar umbúðir, t.d. 5 lbs eða
blokk. Vogarpallurinn er 30 x 30 cm og gerður ur
ryðfríu stáli. í honum er einn kraftnemi. UpplauSl1
og nákvæmni er 3 grömm og mesti þungi er 12 kg-
Með rofa má velja á milli hvort vigtað er í kíl°
grömmum eða pundum. Vogin getur unnið á tvenn
an hátt. í fyrsta lagi sem venjuleg vog og sýn'r
hún þá vigtina á skjá í kg eða lbs. í öðru lagi 11111
nota hana sem pökkunarvog, þ.e. til þess að vigta
ákveðna vigt í pakkningar. Þegar hún er notu1
þannig, er pakkningaþyngd og valin yfirvig1
prósentum sett inri í minnishólf í voginni. Þetta
er gert með takkaborði sem fylgir henni. SetJa
má inn 8 pakkningar samtímis. Auk skjásins seni
sýnir vigtina, er á voginni ljósaröð. Þegar pakka
er, kvikna þar ljós sem sýna frávik frá valinn'
vigt þ.e. hvort vigtin sé rétt eða of lág eða lld'
Vigt pakkningarinnar er sýnd í skjánum og veh11
vogin sjálfvirkt þá pakkningu sem næst liggur Þe*rrl
vigt, sem á hana er sett. Þar sem hafa má í v°-,
inni 8 pakkningar samtímis er auðvelt að vega
fleiri en eina pakkningu í einu. Þegar réttri vl-
hefur verið náð kviknar grænt ljós á ljósaröðinn1
og er þá vigtin innan settra marka t.d. ± 6 g e^a
± 12 g. Á voginni er núllstilling og prenttak
og henni fylgir prentari sem skráir frávik frá valin111
vigt, þegar hún er notuð sem pökkunarvog, en vigr
STEINBITUR
STnERD I
HEILFRYST USH
963 k'u
+05.. 09B LBS
+05,ðð0 LBs
LflNbfi
STfiERD I
HEILFRVST USSR
966 kb
2,5 ? * Blcs-
+Mfi , 000 kb r1^
_ __...... H \
ð2y K.&
-08,029 k'G h’5
Mvnd 4. Útprentun frá rafvogum. Innvigtunarvog
....-----------.....................o-----'v°g ti' 'tfjrvig,
Pökkunarvog lilhœgri. Vigtað er í 5 Ihs öskjur með 2.3%))'
og 3 viglanir eru sýndar.
332 — ÆGIR