Ægir - 01.06.1979, Blaðsíða 36
Halldór Axelsson:
Nýtingarvakt
Fyrsti áfangi vigtar-
kerfis þess sem Vélsmiðj-
an Völundur hf. og raf-
eindafyrirtækið Óðinn sf.
í Vestmannaeyjum eru að
vinna að, er miðaður við
að ná fram og viðhalda
bestri mögulegri nýtingu
fisks í vélasal fiskvinnslu-
stöðvar. Vinna við þetta
viktunarkerfi hófst í apríl
1978, með þvi að Fisk-
iðjan hf. í Vestmannaeyjum samþykkti, í samráði
við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, að kaupa til-
raunakerfi samkvæmt verklýsingu, er höfundur
þessarar greinar hafði gert með aðstoð Samfrosts,
en það fyrirtæki er sameign allra frystihúsanna í
Vestmannaeyjum. Á þeim tíma sem síðan er um-
liðinn hefur viktunarkerfið smám saman þróast og
tekið breytingum þegar hinar margvislegustu að-
ferðir hafa verið reyndar. Uppistaðan i þessu kerfi
er örtölva með 32K minni, disklingsstöð, skermriti
og prentara. Æskilegast hefði verið að nota raf-
eindavogir fyrir vigtarkerfið, en til að fá fram
sjálfvirkan aflestur af vog verður að vera hægt að
breyta aflestrinum í rafmerki. Rafeindavogir eru í
ílestum tilfellum ekki fyrir hendi í fiskvinnslu-
stöðvum hérlendis, auk þess sem þær eru mjög
dýrar, og var því farin sú leið, að settur var
snúningsnemi í mekanísku vogirnar og hann síðan
tengdur skráningarstöð sem fest er á vogina.
(Mynd 1). í þessa skráningarstöð má skrá þá fisk-
tegund sem verið er að vigta svo og staðsetningar
hennar í vinnslurásinni, t.d. fráviktun frá ákveðinni
flökunarvél. Jafnhliða er tíminn þegar vigtunin fer
fram skráður sjálfvirkt og geymdur ásamt öðrum
upplýsingum í minni tölvunnar, en hún er tengd við
allar skráningarstöðvarnar með skermuðum kaph-
Á komandi hausti mun Vélsmiðjan Völundur setja
á markaðinn sambyggða rafeindavog og skráningar-
stöð.
Á síðasta ári var hafin fjöldaframleiðsla á raf-
eindastýrðri fiskflokkunarvél. Fiskflokkunarvél
þessi flokkar fiskinn í mismunandi lengdarflokka,
sem hver um sig fer að því loknu í fyrirfram stilltar
flökunarvélar, er henta hverjum lengdarflokk og
fæst þannig hámarksnýting úr hverjum einstökum
fiski, en fiskurinn er skráður og veginn í stórum
skömmtum fyrir viðkomandi flökunarvél. Frá flök-
unarvélunum er fiskurinn veginn í litlum skömmt-
um, eða um 20 kg í einu, sem tölvan færir eins og
áður er lýst, þ.e. fisktegund, þyngd, númer a
flökunarvél og nákvæm tímasetning. Jafnframt eru
settir teljarar á flökunarvélarnar til að finna hlut-
fall lagers við nýtingarútreikning.
Á forrit tölvurinar er hægt að kalla fram efttt'
talin atriði: heildarþyngd innveginnar fisktegundar,
heildarþyngd fráveginnar fisktegundar, nýtingar-
hlutfall flökunarvélar, athuga einstakar skráningar,
leiðrétta þær ef með þarf og stilla hina inri'
byggðu klukku. Einnig er sjálfstætt forrit sem getur
gert pökkunarspá, t.d. ef fyrir liggja upplýsingar
um hráefnismagn, starfsmannafjölda og umbúðm,
þá reiknar tölvan út vinnutímann, eða ef ljúka
Mvnd I. Skráningarstöð tengd við vog.
352 — ÆGIR