Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1979, Page 50

Ægir - 01.06.1979, Page 50
hafa eiginhagsmuna að gæta, ekki síst undan Kyrrahafsströnd Kanada, en einnig Atlantshafs- megin. Bandaríkin Fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi voru Bandaríkja- menn næststærsta fiskveiðiþjóðin í heiminum. Síðan þá hafa þeir dottið niður i 5. sæti (1974) og veiða aðeins um 4% af heildaraflanum, enda þótt afli þeirra hafi einungis minnkað um 8% á sama tíma. Heildarneysla fiskafurða hefur nær tvö- faldast í landinu, úr 2,9 milljónum lesta árið 1950 í 5,2 milljónir lesta 1976. Vegna þess að fiskiðnaði landsmanna hefur ekki tekist að ná til sín neinu af þessari aukningu og einnig vegna hættunnar á eyðingu fiskstofnanna, hafa stjórnvöld gripið til strangra aðgerða og eru fiskveiðar útlendinga mjög takmarkaðar. Þá hafa verið gerðar áætlanir um uppbyggingu útgerðar og fiskiðnaðar (The Fishery Conservation and Management Act 1976). Bandaríkin hafa fjórðu stærstu strandlengju og þriðju stærstu fiskveiðilögsögu í heiminum og eiga yfir að ráða einhverjum auðugustu fiskimiðum heims. Er talið, að nærri einn fimmta þekktra „lifandi auðlinda“ hafsins sé að finna innan yfirráðasvæða þeirra. Þrátt fyrir þetta hefur fisk- iðnaði Bandaríkjanna farið hnignandi fram á síðustu ár og fiskaflinn staðnað, þrátt fyrir aukna eftirspurn sjávarafurða í heild. Hinni auknu eftir- spurn hefur verið mætt með innflutningi, sem fullnægir nú um 60% heildareftirspurnar. Þótt útflutningur sé nokkur, var viðskiptahalli í þessu tilliti 1,9 milljarður dollara á árinu 1976. Á árunum um og eftir 1950 var nær ekkert um veiðar útlendinga undan austurströnd Banda- ríkjanna, ef frá eru taldir örfáir kanadískir bátar- Á þeim tæplega þremur áratugum sem liðnir eru hefur afli útlendinga nær hundraðfaldast og fjöld' þjóða sem stunduðu veiðar þar fór yfir tvo tug1- (Tafla XVII). Þessi þróun varð sérstaklega ör um og eftir 1960, er sífellt fullkomnari erlend fisk'" skip ásamt verksmiðju- og flutningaskipum baettust í hópinn. Afleiðingin hefur verið sú, að sífellt var nær stofnunum gengið. Um þessar mundir er taljö að 23 stofntegundir á bandarískum miðum seu ofveiddar og í hættu. Mikivægastar þeirra eru ýs3- síld, yellowtail flounder (flatfisktegund), menhaden (uppsjávar fiskur er heldur sig í torfum líkt og síld og loðna) og Kyrrahafsufsi. Vegna hins tiltölulega frjálsa aðgangs erlendra flota að miðunum fór afli heimamanna stöðug1 minnkandi, sérstaklega af þeim tegundum, sem mest eftirspurn var eftir. Ýsuveiðar við Nýja-Englaud- sem voru stór og ábatasöm grein um 1950, haía t.d. orðið að nær engu á síðustu árum. Var aflamagu rúmlega tífalt þá samanborið við aflann nú, e^a um og yfir 70 þús. lestir. Ofveiðin er samt sem áður ekki eingöngu sök útlendinga, þar sem um 15 af hinum ofveiddu tegundum eru að mestu veiddar af bandarískum fiskimönnum. Þrátt fyrir það má telja víst að þær tegundir sem eru bæði veiddar af heima- mönnum og útlendingum séu mikilvægari og hat' meiri áhrif, þar sem stofnarnir voru upphafle?3 sterkir. Njóta þær einnig meiri markaðsvinsælda- Stærðarmunurinn á skipum heimamanna og ut' lendinga var veigamikil ástæða fyrir minnkand’ Tajla XVU. Aflaskipting undan Norður-Atlantshafsströnd Bandaríkjanna eftir löndun. (000 tonn). 1954 1958 1962 1966 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977* Bandaríkin 413 446 428 933 985 966 956 1.061 1.017 980 1.037 1.009 Kanada 1 13 55 108 101 70 52 52 62 76 90 124 E.B.E - - - - 93 60 38 46 36 39 26 5 Austur-Evrópa .. - - 1 16 150 381 392 386 288 236 144 34 Sovétríkin - - 209 587 269 407 489 451 351 314 206 102 önnur lönd -■ - - 17 38 42 50 55 50 40 44 31 Samtals 414 459 693 1.661 1.636 1.926 1.977 2.051 1.804 1.685 1.547 1.305 Hlutdeild Bandar. 99,8 97,2 61,8 56,2 60,2 50,2 48,4 51,7 56,4 58,2 67,0 77,3 * Bráðabirgðatölur. 366 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.