Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1979, Síða 66

Ægir - 01.06.1979, Síða 66
A TÆKJAMARKAÐNUM Kraftblakkir frá ABAS Fyrirtækið Aukra Bruk A.S., skammstafað ABAS, var stofnað þann 8. jan. 1949 á eyjunni Gossen, sem er sunnarlega við vesturströnd Noregs. í fyrstu voru aðalverkefni fyrirtækisins viðhald og endurbyggingar á skipum, ásamt lengingum á smærri stálskipum. Fljótlega fór fyrirtækið að taka að sér stærri verkefni, svo sem nýsmíði stálskipa, og á árinu 1960 samdi fyrirtækið um smíði á tveim 1800 dwt stálskipum. Á árinu 1977 hafði fyrirtækið komið sér upp aðstöðu til að byggja allt að 92 m löng skip. í tengslum við stálskipasmíðina er dráttarbraut, sem getur tekið upp skip allt að 1200 t að þyngd. Auk þeirra verkefna sem hér hafa verið nefnd, er unnið margháttuð stálsmíði á vegum fyrirtæk- isins, ásamt framleiðslu á vélrænum búnaði svo sem vökvaknúnum vindum, kraftblökkum o.fl. Hér á landi eru kraftblakkir og færslublakkir þekktastar af framleiðslu ABAS, en þær eru fram- leiddar af ýmsum stærðum og gerðum. í janúar 1979 kom á markaðinn ný gerð af kraftblökk frá ABAS, GE 16/140, þessi kraftblökk kemur í stað gerðar GD 16/110, en megin breytingin virðist fólgin í því að þvermál dráttarhjólsins hefir verið aukið úr 110 cm í 140 cm. Meðfylgjandi myndir eru af kraftblökkum frá ABAS, gerðir GE 22/140 - GE 16/140 - GE II/ 140. Ytri mál þessara þriggja gerða eru þau sömu en munur milli gerðanna er fólginn í mismunandi dráttargetu eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Myndirnar sýna uppbyggingu kraftblakkarinnar í megin atriðum í láréttum og lóðréttum fleti. Helstu einingar kraftblakkarinnar eru bómustóll, bóma, vökvatjakkur, rúlla og kraftblakkarhaus. Eins og fram kemur á myndinni er bómustóllinn byggður upp sem þrífótur, en rétt er að geta þess að um nýja útfærslu er að ræða, og enn sem komið er hefir engin kraftblökk verið flutt hingað til lands með þessari útfærslu á bómustólnum. Bóman gengur í gegnum legu efst í bómustólnum en neðri endi hennar hvílir í legu sem fest er í botnplötu 800»ax 680 m. n Myrxdirnar sýna GE 22/140, GE 16/140 og GE 11/140 i lóðréllu og láréltu plani. þrífótarins. Vökvatjakkur tengist bómunni oggetu.r snúið henni um allt að 120° í láréttu planl' Kraftblakkarhausinn tengist bómunni um lið en yf[r liðinn er tengdur vökvatjakkur sem getur hrey*1 kraftblakkarhausinn í lóðréttu plani um 80 - 60° uppfyrir og 20° niðurfyrir lárétta miðlinU kraftblakkaröxulsins. Kraftblakkarhjólið er knúi af tveim vökvamótorum frá Staffa, gerð B-30. Helztu tæknilegar stærðir. GE GE GE Gerð 22/140 16/140 11/140 Hámarks togátak 0-770 8.4 4.6 4.6 tonn Dráttarhraði 0-770 0-40 0-60 0-40 m/nun- Snúningshraði .... 16 24 16 sn/mín- 1,/rnín- Olíumagn 170 150 85 H ámarksþrýstingur 210 210 210 bar- Vinnuþrýstingur ... 180 180 180 baf- hö- Hámarksaflþörf ... 95 80 45 382 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.