Ægir - 01.08.1980, Qupperneq 12
kappkostar að hafa sem nánast samstarf við skip-
stjóra og útgerðarmenn við hönnun skipa sinna.
Þau eru burðarmikil, nýtískuleg og búin öllum
nýjustu fiskileitar- og siglingatækjum. Fiski-
skipin eru sérstaklega vel búin til þess að geyma
mikið magn af fiski og koma honum til hafnar
yfir hið stormasama Atlantshaf sem fyrsta flokks
vöru. Einnig byggir stöðin fyrsta flokks farmskip.
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
Utflutningsmiðstöðin kemur á framfæri er-
lendis íslenskum framleiðsluvörum. Þjónusta við
erlenda kaupendur er yfirgripsmikil og margþætt,
og má nefna gagnasöfnun um framleiðsluna frá
íslenskum framleiðendum, sem komið er á fram-
færi erlendis. Einnig er stór hluti starfseminnar
fólginn í ráðgjöf á sviði markaðsöflunar og við-
skipta, sem látin er í té endurgjaldslaust.
Vélsmiðjan Oddi hf., Akureyri
Fyrirtækið framleiðir vandaða bobbinga, milli
bobbinga ásamt öðrum hlutum togveiðarfæra.
Einnig framleiðir fyrirtækið álfiskikassa 800-L.
Til framleiðslunnar er aðeins notað fyrsta flokks
efni og lögð er þung áhersla á stöðugt samband
við reynda aflamenn, og þekking þeirra nýtt til
betri framleiðslu.
Vélsmiðjan Völundur hf., Vestmannaeyjum
Fyrirtækið var stofnað árið 1958 til að fram-
leiða vélar og tæki tengd fiskveiðum og -vinnslu
og til að annast almennt viðhald fyrir sömu aðila.
Arið 1974 hófst samvinna þess og rafeindafyrir-
tækisins Óðins á sviði rafeindastýrðs búnaðar. í
dag framleiðir fyrirtækið m.a. rafeindastýrðar
bolfisks- og flatfisksflokkunarvélar, flökunar-
vélanýtnivaka, rafeindastýrða sílóvog með sjálf-
virkum búnaði til áfyllingar og tæmingar, stjórn-
búnað á framleiðslulínur, og fjölteljara vegna
kaupaukaútreiknings ákvæðisvinnufólks.
Flestir íslensku sýnendurnir höfðu meðferðis
sýnishorn af vöru sinni og allir buðu upp á góð
myndskreytt rit um hana með ýtarlegum tækni-
legum upplýsingum. Jafnframt var í básunum
svarað fyrirspurnum áhugasamra sýningagesta, sem
margir virtust eiga erindi þangað.
Þegar gengið er um sali Bella Center og World
Fishing skoðuð hljóta ætíð að vakna áleitnar spurn-
ingar, eihs og t.d. hvað kom þér mest á óvart? hvað
fannst þér athyglisverðast? eða kom hér fram ein-
hver nýjung í sambandi við einhverja grein sjávar-
útvegs, sem boðar byltingu á sínu sviði, líkt og
asdiktækið og kraftblökkin gerðu á sínum tíma?
Ekki þarf annað en að líta yfir upptalninguna
hér að framan um sýnendur, til að sjá að hér áttu
allir aðilar tengdir sjávarútvegi að finna eitthvað
áhugavert við sitt hæfi. Hér mátti sjá stórar, afl'
miklar dieselvélar ásamt skrúfubúnaði, og niður-
færslugírum, háþróuð tölvustýrð fiskileitartæki
mörg búin litaskjá, og fjöldann allan af staðsetn-
ingartækjum ásamt ódýrari tækjum, sem þó efU
nauðsynleg eins og t.d. fjölbolla, sjálfáhelland1’
veltingsþolnar kaffikönnur.
Þekktir framleiðendur eru að bæta við nýjum
gerðum af vélum sínum eða tækjum til að mæta
kröfum hins síbreytilega markaðs. Sem dæmi 103
taka Twin Disc, sem framleitt hefur samnefnd8
þekkta niðurfærslu- og vendigíra í skip, sem kynn11
á þessari sýningu Twin Disc MG 509 með skip11'
skrúfubúnaði sem þá heitir Twin Disc MG 509 CP-
Twin Disc hefur ekki áður framleitt skiptiskrúfu-
búnað. Þannig mætti telja upp eitt og annað sem er
að vísu nýtt hjá viðkomandi framleiðanda en boðar
enga tæknibyltingu eða grundvallarbreytingu a
vinnslumáta atvinnugreinarinnar.
Það sem kom mér sennilega mest á óvart var, h'e
marga þekkta dieselvélaframleiðendur vantaði a
sýninguna, og má sem dæmi taka A/S Wichmann
frá Noregi, Caterpillar frá U.S.A., MAK frá
Þýskalandi svo einhverjir séu nefndir. Enginn h1*1
skilja orð mín svo að allir framleiðendur diese
véla í heiminum eigi að flykkjast á slíka sýningu
með sína framleiðsluvöru, kannski fjölda mör?
þúsund hestafla véla, sem hlýtur að vera mjöfc
kostnaðarsamt. Aftur á móti tel ég eins og raunar
er komið fram, ávinning í að eiga aðgang að upP
lýsingum um dieselvélar og önnur tæki sem flestra
framleiðenda á einum stað bæði í formi uppl>j
ingarita og viðtala við tæknimenn framleiðen
anna.
í beinu framhaldi er eðlilegt að spyrja hv°r|
komið hafi fram margar nýjungar í gerð dieS
véla, og frómt frá sagt virtist mér það ekki veta_
Orkunýting dieselvéla hefur ekki aukist að ne1
marki að undanförnu þó alltaf þokist í attin^,
Segja má að meðaldieselvél breyti aðeins um 4
af orku notaðs eldsneytis í nýtanlega hreyfi°r ’
kse'1'
eim
við má bæta að í mörgum tilfellum er orka ur
vatni og útblástursgasi nýtt til upphitunar i ^
hverjum mæli, sem hækkar eitthvað nýtingu n°ta^
eldsneytis. Á umræddri sýningu kom glöggt fraIT1
420 — ÆGIR