Ægir - 01.08.1980, Page 14
unnar til þess að hægt sé að dæla henni og ýra inn
í brunahol vélanna.
En það sem skiptir sköpum er efnainnihaldið.
Segja má að með hækkaðri seigju aukist aukaefni
olíunnar, en það er ekki alltaf rétt, nokkuð til í
því eins og fram kemur í töflu.
WÁRTSILA VASA sýndi nýja dieselvél sem til-
heyrir nýrri framleiðslulínu hjá þeim, Vasa 22 HF,
en vélar hennar eru sérhannaðar til brennslu á svart-
olíu, með lágmarksgæði þau sem koma fram í töflu
1. I kynningu vélanna kemur fram að búið sé að
reynslukeyra um nokkurn tíma Vasa 22 HF á svart-
olíu og til samanburðar hafi einnig verið keyrt á
gasolíu og á niðurstöðum þessarar reynslukeyrslu
sé vélin m.a. hönnuð. Tekið er fram að nokkrir
hlutir Vasa 22 og Vasa 22 HF séu þeir sömu, eins
og vélarblokkin, sveifarásinn og sveifar og höfuð-
legur en Vasa 22 kom á markað á árinu 1974.
Einnig er tekið fram að allir þeir vélarhlutir, sem
séu í beinu sambandi við eldsneytið eða bruna þess
séu sérhannaðir.
Upp eru talin, strokklok, strokkfóðringar, bullur
og eldsneytiskerfi og nokkrum orðum farið um sér-
stæða hönnun hvers og eins. Glöggt kemur fram að
Vasa 22 HF sé ekki vél, sem breytt er til svart-
olíubrennslu, heldur sé um algjörlega nýja hönnun
að ræða á nánast öllum hlutum hennar svo og
vinnslumáta með tilliti til hagkvæms reksturs á
svartolíu.
Vélar Vasa 22 HF línunnar verða framleiddar í
fimm gerðum: 4R 22 HF, 6R 22 HF, 8R 22 HF, 10V
22 HF og 16V 22 HF, og munu koma á almennan
markað á árinu 1981. Fyrsti stafurinn í gerðar-
einkenninu segir til um strokkatöluna, R táknar að
vélin sé línubyggð, V að hún sé V-byggð. Talan 22
er línueinkenni en HF stendur trúlega fyrir „heavy
fuel“.
Vélarnar spanna aflsviðið frá 745-3315 hö við
snúningshraða frá 900-1000 sn/mín. Ef bornar eru
saman Vasa 22 og Vasa 22 HF kemur fram að öll
helstu mál eru þau sömu, eini munurinn í fraW'
komnum upplýsingum um tæknilegar stærðir er sa,
að Vasa 22 HF virðist um 14% aflmeiri á strokk en
Vasa 22 við saman snúningshraða.
NOHAB DIESEL. Ekki er hægt að víkja ^
Wartsila Vasa án þess að geta um sænska frant'
leiðandann Bofors, sem framleiðir Nohab diesel'
vélar, en tengsl þessara tveggja framleiðenda eru
m.a. þau að Wártsila Vasa er umboðsaðili fyr,r
Nohab dieselvélar í Finnlandi og Bofors er uni'
boðsaðili fyrir W’ártsila Vasa dieselvélar í Svi'
þjóð. Þess vegna fór vel á því að þessir tveir frani'
leiðendur hefðu sameiginlegan sýningarbás á Worlá
Fishing, en þar sýndi Wartsila Vasa áðurnefnd3
dieselvél Vasa 22 HF, sem var af gerðinni Vasa
8R22 HF og Bofors sýndi Nohab Diesel F 316 seiU
er aflmesta dieselvélin í F 30 framleiðslulínunn1
hjá þeim, en vélar hennar komu á markað fyrir un1
það bil 2Vi ári.
Vélar F 30 línunnar eru framleiddar í þreI11
megingerðum F 38 V, F 312 V og F 316 V, þar sem
F 3 er línueinkenni, næsta tala segir til nn1
strokkatölu og V að vélin sé V-byggð.
Vélar þessarar línu spanna aflsviðið frá 1768 '
4080 hö við snúningshraða frá 720 til 825 sn/m111
miðað við stöðugt álag.
í upplýsingariti um þessar vélar kemur fram a .
þær séu hannaðar með það fyrir augum að þær getl
brennt svartolíu. f töflu 1 kemur fram innan hva a
marka eldsneyti véla F 30 og F 20 línanna á a
vera. Skýrt er tekið fram að ef vélar F 30 línunnar
eigi að brenna svartolíu af framkomnum gae^3
flokki skuli í hverju tilfelli hafa samband við fram
leiðandann og fá frá honum nákvæm fyrirmm
Tafla 1: Eldsneyti dies-
elvéla, tvœr gerðir
Gasolía og svartolía
á islenskum markaði
Kröfur þriggja dieselvélaframleiðenda til eldsneytis
eftirtalinna véla sinna. Athuga ber að eftir er að for-
Gasolia Svartolia Alpha Diesel T23L-KVO Wartsila Vasa 22HF Nohab Diesel F20-F30
Seigja sRi 100 F° 33 134 hámark 200 1500 1500
sSt50 C° 2,5 21 hámark 30 180 180
Eðlisþyngd kg/dm315 C° 0,83 0,91 hámark 0,92 0,98 0,98
Koksmagn % af þunga 0,1 4,8 hámark 4 12 10
öskumagn % af þunga 0,02 0,02 hámark 0,02 0,05 0,08
Brennisteinn % af þunga 0,2 2 hámark 2 4 3,5
Vanadium ppm 0 61 hámark 50 300 100
Sodium PPm 0 20 hámark 0 50 50
Hitagildi kcal/kg 10200 9870 9600
422 — ÆGIR