Ægir - 01.08.1980, Side 38
NÝ FISKISKIP
Barði NK-120
30. janúar s.l. kom skuttogarinn Barði NK-120
ífyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Neskaupstaðar.
Skuttogari þessi, sem áður hér Boulonnais, er
keyptur notaður frá Frakklandi, en er byggður í
Gdynia í Póllandi árið 1975 hjá skipasmíðastöð-
inni Stocznia im. Komuny Paryskiej, svonefnd
B-416 gerð. Þess má geta að umrœdd stöð hefur
byggt 10 skuttogara fyrir íslendinga, en auk þess
hafa áður verið keyptir fjórir skuttogarar til lands-
ins notaðir, sem byggðir eru hjá umrceddri stöð. Er
þetta því 15. skuttogarinn í eigu landsmanna frá
„Stoczina“ í Gdynia.
Barði NK er systurskip Birtings NK og Hegraness
SK, sem keyptir voru notaðir til landsins árið 1977,
og Þorláks ÁR, sem keyptur var á s.l. ári. Allt
meginfyrirkomulag er samsvarandi í skipum þess-
um, svo og vélabúnaður og aðalvindur, en frávik
í hjálparvindu- og rafeindatœkjabúnaði og búnaði
vinnuþilfars. Ýmsar breytingar voru gerðar á skip-
inu í Englandi áður en það kom til landsins, m.a. á
fyrirkomulagi togþilfars, fyrirkomulagi íbúða,
fyrirkomulagi og búnaði á vinnuþilfari og í lest,
bœtt við tækjum í brú o.fl. Nú í júlí s. I. var settur
í skipið búnaður til brennslu á svartolíu.
Barði Nk er í eigu Síldarvinnslunnar hf. í Nes-
kaupsstað, sem átti áður skuttogara með sama nafni,
og varfyrsti tveggja þilfara skuttogarinn með skut-
rennu, sem til landsins kom (des. 1970). Gamli Barði
var seldur til Frakklands og gekk upp í kaupin á nýja
Barða. Síldarvinnslan hf. á fyrir tvo skuttogara, en
það eru Bjartur NK-121 og Birtingur NK-119.
Skipstjóri á Barða NK er Herbert Benjamínsson
og 1. vélstjóri Bjarki Þórlindsson. Framkvœmda-
stjóri útgerðar er Jóhann Kr. Sigurðsson.
Almenn lýsing:
Skipið er tveggja þilfara skuttogari með skut-
rennu upp á efra þilfar og er byggt samkvæmt
reglum og undir eftirliti Bureau Veritas í flokki
I 3/3 E, iji Fishing Vessel Deep Sea, £i MOT.
Mesta lengd ......................... 45.57 m
Lengd milli lóðlína ................. 39.00 m
Breidd .............................. 10.50 m
Dýpt að efra þilfari ................. 6.89 m
Dýpt að neðra þilfari .............. 4.50 m
Eiginþyngd ............................ 625 t
Særými (djúprista 4.45 m).............. 913 t
Burðargeta (djúprista 4.45 m) ......... 288 t
Lestarrými ............................ 356 m3
Brennsluolíugeymar .................... 126 m3
Ferskvatnsgeymar ....................... 25 m3
Sjókjölfestugeymar (skutgeymar) .... 30 m3
Ganghraði............................. 13.5 hn
Rúmlestatala .......................... 453 brl.
Skipaskrárnúmer ...................... 1548
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fimn1
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki (fyrir sjókjölfestu); hágeyrni
fyrir brennsluolíu ásamt keðjukassa og asdikklefa'
fiskilest með botngeymum fyrir brennsluolíu; véD'
rúm með vélgæzluklefa fremst b.b.-megin og
brennsluolíugeymum aftast í siðum; ferskvatns-
geyma yfir stefnisröri og skutgeyma aftast fyrir sjo-
kjölfestu.
Á fremri hluta neðra þilfars er vinnuþilfar og
aftur úr því, b.b.-megin við miðlínu, er gangur aftur
að fiskmóttöku. Sitt hvoru megin við ganginn er
íbúðarými, en aftan við það eru veiðarfærageymsl'
ur, s.b.- og b.b.-megin, aftast á neðra þilfari-
Fiskmóttaka er aftarlega á neðra þilfari, fyrir miðjd-
en þar fyrir aftan er stýrisvélarrúm, undir skut-
rennu.
Á miðhluta efra þilfars eru þilfarshús í báðum
síðum, en enginn hvalbakur er á skipinu. Að frarnan
tengjast þilfarshús þili þvert yfir skipið, sem mynda(
framhlið yfirbyggingar. Fremst i s.b.- þilfarshus'
eru íbúðir ásamt stigagangi upp í brú og niður a
neðra þilfar, en þar fyrir aftan salernisklefi, stiga'
gangur niður á neðra þilfar, vélarreisn og klefi fyrlt
togvindumótor aftast. Þilfarshús b.b.-megin eru 1
tveimur hlutum: í fremri hluta er klefi fyrir fiot'
vörpuvindumótor og klefi fyrir CO^-slökkvikerfi’
en í aftari hluta er klefi fyrir hífingavindumóto1’'
salernisklefi, stigagangur og aftast klefi fyrir t°g
vindumótor. í framhaldi af skutrennu að afial1
kemur vörpurenna sem greinist í tvær bobbinga
rennur, sem ná fram að stefni og skera framP1
yfirbyggingar. Yfir frambrún skutrennu er bipoCl
mastur, en aftast, sitt hvoru megin við skutrenfiú’
446 — ÆGIR