Ægir - 01.08.1980, Síða 48
Erlendur Haraldsson, dósent:
Hefur þú orðið var við
látinn mann?
Trú á annað líf eftir líkamsdauðann virðist eiga
sér djúpar rætur í hugum fólks um allan heim. í
flestum löndum trúir meirihluti manna á annað líf
í einhverri mynd. Þetta hafa skoðanakannanir leitt
berlega í ljós, þótt verulegur mismunur komi í sum-
um tilvikum fram milli einstakra þjóða. Ef marka
skal svör manna í skoðanakönnunum, þá búast t.d.
bæði hér og í Bandaríkjunum nær þrír menn af
hverjum fjórum við áframhaldandi lífi sjálfs sín
eftir andlátið. í Svíþjóð og Frakklandi, svo dæmi
séu nefnd, eru þeir sem trúa á annað líf hins vegar
heldur færri en hinir sem ekki trúa á framhaldslíf
í neinni mynd.
Ekki svo að skilja að menn trúi annaðhvort
á annað líf eða ekki, heldur má finna öll blæbrigði
frá fullkominni vantrú til algerrar vissu. Hér á
landi töldu t.d. 40% sig vissa um annað líf, 28%
töldu það líklegt, 20% álitu það mögulegt, en 5%
kváðu það ólíklegt og aðeins 2% óhugsandi.
En sumir - þótt þeir séu mun færri - byggja við-
horf sitt til framlífs ekki á trú, eða á trú einni saman,
heldur telja það grundvallast á einhvers konar
reynslu, á einhverju sem fyrir þá hefur komið.
Hér er um fleiri en eina tegund reynslu að ræða,
stundum er hún á sviði trúmálanna en stundum
ekki, að áliti þeirra sem fyrir henni verða. Til
dæmis kemur fyrir - stundum við slys eða veikindi,
stundum í heilbrigðu ástandi - að mönnum finnst
þeir skyndilega vera fyrir utan líkama sinn og
jafnvel sjá hann þar sem hann liggur.
Þá munu sumir vafalaust hafa heyrt gamlar
sagnir og nýjar af sjómönnum sem voru nær
drukknaðir en tókst að endurlífga. Sumir þeirra
komu tilbaka úr heimi dauðans með minningu
um slíka vellíðan að þeir sáu jafnvel bjargvætti
sína aldrei í réttu ljósi eftir það, svo mun betri
þóttí þeim vistin „hinum megin.“
Algengust er þó sennilega sú reynsla að telja
sig á einhvern hátt hafa orðið varan við látinn mann.
í könnun sem gerð var á vegum Háskóla íslands
fyrir nokkrum árum kom í ljós að þrír af hverjum
tíu fulltíða íslendinga töldu sig einhvern tíma
á ævinni hafa á einhvern hátt orðið vara við ná-
vist látinna manna.
Því fer víðs fjarri að einungis íslendingar verði
fyrir reynslu af þessu tagi. í Bandaríkjunum taldi
rúmlega fjórði hver maður sig hafa komist í snert-
ingu við látna þegar háskólinn í Chicaco gerði um
þetta umfangsmikla könnun fyrir nokkrum árum-
Áður héldu sumir að þetta heyrði fortíðinni til
en nýlegar rannsóknir benda til þess, að ef til vil'
sé það ekki fátíðara nú en á fyrri öldum að menn
telji sig verða á einhvern hátt vara við látna
þannig að þeir reki orsök reynslu sinnar til til-
veru látinna manna. Um raunveruleika þessarar
reynslu deila menn náttúrlega, en þeir sem fyr,r
þessu verða standa yfirleitt fastir á sínu.
En kannanir eins og þær sem ég nefndi hér að
ofan gefa aðeins tölulegan fróðleik. Þær seg)a
okkur ekkert um það hvað gerist í hverju tilvikh
t.d. við hvaða aðstæður þetta gerðist. Til þesS
þarf að afla ítarlegra upplýsinga um einstök
tilfelli. T.d., á hvern hátt fannnst manninum hann
skynja hinn látna? Við hvaða aðstæður gerðist
þetta? Hvað einkenndi hina látnu? Gáfu þe,r
eitthvað til kynna? Hvað olli því að maðurinn
rak reynslu sína til látinna manna en ekki td
einhvers annars? í hvaða ástandi var sá er fyrlf
reynslunni varð?
Slíkum spurningum og mörgum fleiri sem vakna
þegar litið er á niðurstöður kannananna sem eS
minntist á hér að ofan, verður aðeins svarað med
sérstakri könnun þar sem aflað er upplýsinga um
mörg einstök tilfelli. Aðeins þannig má ef til vu
fá haldbetri vitneskju um þessi umdeildu fyrirbæ1'1
sem oft og einatt hafa mikil áhrif á menn og verða
þeim sérstaklega eftirminnileg.
Nú fýsir okkur, sem stóðum fyrir nokkrum
árum að könnuninni á vegum háskólans, að
samband við fólk sem að eigin mati hefur einhvern
tíma og á einhvern hátt orðið vart við látið fólk-
í því skyni fylgir Ægi í þetta sinni lítill spurning3'
listi á einu blaði ásamt umslagi sem leggja ma 1
póst án þess að setja á það frímerki. Nú viljujj1
við eindregið hvetja alla þá sem telja sig ha
orðið fyrir reynslu af þessu tagi, að setja na
sitt á blaðið og stinga því í póst. Við munum
síðar bráðlega hafa samband við þá í síma e
bréflega.
456 — ÆGIR