Ægir - 01.11.1980, Page 36
Fjöldi fiskiskipa 1977:
Bátar án vélar. 31.968
Bátar með utanborðsmótor 99.835
Vélknúin skip 190.043
Þar af:
undir 1 brl. 28.137
1—3 brl. 83.966
3—5 brl. 50.711
5—10 brl. 11.852
10—20 brl. 7.596
20—50 brl. 1.586
50—100 brl. 3.386
100—500 brl. 2.631
500—1000 brl. 59
Yfir 1000 brl. 119
Fjöldi skipa 321.846
Fjöldi brl. samtals: 2.101.077
Fiskimennskan:
Árið 1977 stunduðu 459.260 manns fiskveiðar
meira en einn mánuð ársins. Meirihlutinn hefur
fiskimennsku að aðalstarfi, samt er talsvert um
blandaða atvinnu, einkum í útróðrinum og þá
annaðhvort landbúnað og fiskveiðar eða iðnaðar-
störf og fiskveiðar. Af 607.023 manns í vinnu á
aðalveiðitimanum 1977 voru 369.642 fjölskyldu-
meðlimir sem unnu við eigin fyrirtæki og 237.381
beinir launþegar. Það ár voru í útróðrinum
316.280 fiskimenn að aðalstarfi, þar af 74.170
konur og 237.381 beinir launþegar. Það er einkum
hjá smáútgerðunum sem fjölskyldumeðlimir og
lausráðið fólk vinnur og stundar fiskveiðar að
minna en hálfu. Tekjurnar eru rýrar, en samt er
þessi vinna tekin fram yfir það að vera lausráðinn i
iðnaði.
Sjávarræktun:
Sjávarræktun er arðbær atvinnugrein þegar á
heildina er litið og starfa 103.790 manns við hana.
(Þetta fólk er talið með þeim sem útróðra stunda).
Rauðþarinn Nori er mikið ræktaður, en hann
gefur lítið af sér og dugar ekki til lífsviðurværis
einn sér. Aðrar tegundir eru arðbærari þannig að
þeir sem sjávarræktun stunda hafa það betra en
yfirleitt gerist meðal fiskimanna og iðnverkafólks.
Ræktendur gullsporða (seriola tegunda) hafa
hæstar tekjurnar. Starfsmenntun er aðallega veitt
af fjölskyldunum á hverjum stað, aðeins nokkur
helztu fyrirtækin krefjast prófa frá sérskólum.
Úthafsveiðarnar:
Meðalstóru fyrirtækin veita 103.070 manns
vinnu. Launamunur er allt að þrefaldur, á togbát
10—30 brúttórúmlesta hafa menn að meðaltali
150.000 yen á mánuði, en á 200—500 brúttórúm-
lesta skipunum hafa þeir 450.000 yen. Launakerfi
eru blönduð, t.d. fastakaup eða kauptrygging að
viðbættum aflaverðlaunum. Því stærri sem fyrir-
tækin eru þeim mun algengara er að fastakaup se
greitt. Mjög eru aflaverðlaun mismunandi eftir
tegundum veiða og getur skipstjóri haft þrefalt til
fjórfalt meiri en háseti.
Á 68% flotans sem veiðar stunda á nálægum
Fjöldi útgerða eftir svæðum:
Stórút- Stærri útgerð Útróður
gerð á nálœgum og að sjávarrækt
flotar fjarlœgum mið. frátalinni
Hokkaido 27 1.500 23.196
Norður-Kyrrahaf 47 1.590 12.202
Mið-Kyrrahaf 69 1.405 19.015
Suður-Kyrrahaf 1.236 14.307
Norður-Japanshaf 8 693 10.218
Vestur-Japanshaf 12 1.128 13.138
Austur-Kínahaf 38 1.932 40.386
Setosjór (innhaf) 1 895 28.914
Samtals 209 10.379 161.276
596 — ÆGIR