Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1980, Blaðsíða 52

Ægir - 01.11.1980, Blaðsíða 52
strokka fjórgengisvél, 70 hö við 1500 sn/mín. Vél- in knýr einn Laurence Scott riðstraumsrafal, 40 KW (50 KVA), 3 x 440 V, 50 Hz, og eina útkúplan- lega ræsiloftþjöppu. Til viðbótar er ein 12 ha Russell—Newbery hjálparvél í hjálparvélarými afturskips, sem knýr austur- og slökkvidælu (neyðardælu). í skipinu er ketill frá Spanner Boilers Ltd. til gufuframleiðslu, sem fær varma frá afgasi aðalvél- ar, eða er olíukyntur. Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Donkin & Co. Til hreinsunar á brennsluolíu og smurolíu eru tvær skilvindur frá Alfa Laval af gerðinni MAB 104 B—14. Fyrir ræsiloftkerfið er ein rafdrifin Hamworthy loftþjappa af gerð 2 SF 4, afköst 60 m3/klst við 30 kp/cm2 þrýsting, og áðurnefnd vél- drifin loftþjappa, afköst 22 m3/klst við 30 kp/cm2 þrýsting. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar frá Woods of Colchester, afköst 9300 m3/klst hvor blásari. Rafkerfi skipsins er 440 V, 50 Hz riðstraumur fyrir rafmótora og stærri notendur, en 220 V, 50 Hz riðstraumur til ljósa og almennra nota í íbúð- um. Fyrir 220 V kerfið eru þrír spennar 440/220 V. í skipinu er landtenging. í skipinu er austurskilja frá Ferguson & Timp- son af gerð Victor Minor, afköst 2 t/klst. Fyrir geyma skipsins er tankmælikerfi frá Kelvin Hughes. í skipinu er CO2—slökkvikerfi. Fersk- vatnsframleiðslutæki er í skipinu, afköst 2-3 tonn á sólarhring. Til að hita upp skipið er komið fyrir gufuhitaeli- menti í loftrás sem fær varma frá gufukatli. í höfn er ketill kyntur með olíu. Auk þess eru rafmagnsofnar í brú og í snyrtiklefum. Til upp- hitunar á vatni er hitakútur tengdur katli. Fyrir eldhús eru sér blásarar. í skipinu eru tvö vatnsþrýstikerfi frá Mono Pumps fyrir hreinlætiskerfi, annað fyrir sjó og hitt fyrir ferskvatn, stærð þrýstigeyma 125 1. Fyrir lágþrýstiknúnar hjálparvindur eru þrjár rafdrifnar Allweiler vökvaþrýstidælur, tvær í stýr- isvélarrúmi fyrir hjálparvindur á afturþilfari, og ein í geymslu fremst á neðra þilfari fyrir akkeris- vindu. Fyrir flotvörpuvindu, og aðrar háþrýsti- knúnar vindur, er ein rafdrifin háþrýstidæla í klefa fyrir togvindumótor. Fyrir vökvaknúnar lúgur, Rún HF342, myndin er tekin þegar skipið bar nafnið C.S. For- ester. færibönd o.fl. eru fjórar rafdrifnar vökvaþrýsti- dælur í hjálparvélarými afturskips. Tvær rafdrifn- ar vökvaþrýstidælur eru fyrir stýrisvél. Fyrir lestarkælingu er ein rafdrifin kæliþjappa frá J & E Hall, kælimiðill Freon 22. Fyrir matvælageymslur er rafdrifin kæliþjappa frá Bock af gerð F2, kælimiðill Freon 12. íbúðir: í íbúðarými á neðra þilfari eru fremst matvæla- geymslur, en s.b.—megin þar fyrir aftan er þvotta- herbergi, einn 2ja manna klefi og tveir eins—manns klefar, borðsalur, eldhús, búr og aftast geymsla (áður borðsalur fyrir yfirmenn)- B.b.—megin er fremst snyrting með tveimur sal- ernisklefum og sturtu, þá klefi matsveins fyrir miðju, þrír 2ja manna klefar, einn 3ja manna klefi og setustofa aftast. Vélarreisn er aftantil ' íbúðarými, fyrir miðju, og íbúðagangar beggj3 megin, en framan við vélarreisn er matvælafrystir og matvælakælir. í íbúðarými á efra þilfari, b.b.—megin, er íbúð skipstjóra fremst, sem er svefnklefi, setustofa og snyrting (sameiginleg), þar fyrir aftan er einn eins- manns klefi fyrir stýrimann með aðgang að snyrt- ingu skipstjóra. S.b.—megin í yfirbyggingu á efra þilfari eru fjórir eins—manns klefar fyrir yfir- menn, snyrting fyrir yfirmenn, en að auki eru ' þessu rými hlífðarfatageymsla og aftast klefi fynr togvindumótor og klefi fyrir loftræstibúnað. í brú er fremst stýrishús, loftskeytaklefi aftast s.b.—megin, og kortaklefi og klefi fyrir rafbúnað aftast b.b.—megin. 612 — ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.