Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1981, Page 10

Ægir - 01.09.1981, Page 10
KEVLAR Nýtt gerviefni frá DuPont Komið er á markaðinn nýtt gerviefni, kevlar, sem er byggt upp af sameindakeðjum likt og önnur gerviefni nema hvað sameindirnar i þessum þræði eru stærri og sterkari. Visindamenn DuPont-fyrirtækjasamsteypunnar fundu upp nylonið á sínum tíma og var hafin fram- leiðsla á því rétt fyrir upphaf heimstyrjaldarinnar síðari, en sakir stríðsins stöðvaðist sala til almenn- ings á þessari framleiðslu þeirra og fór allt nylon til stríðsrekstursins, s.s. framleiðslu þeirra og fór allt nylon til stríðsrekstursins, s.s. framleiðslu fall- hlífa, hjólbarða fyrir flugvélar o.fl., en eins og menn rekur e.t.v. minni til, þá varð nafn þessa fyrirtækis víðfrægt eftir stríð þegar nylonsokkarnir hófu sigurgöngu sína um heiminn. Á s.l. fjórum áratugum hefur fyrirtækið siðan sett á markaðinn hvert gerviefnið af öðru og er kevlar bein afleiðing af rannsóknastörfum vísindamanna fyrirtækisins á þessu sviði. Kevlar þráðurinn er sterkasta gerviefnið sem fáanlegt er á almennum markaði í dag. Kevlar er fimm sinnum sterkara en stál miðað við þyngd, og þegar er hafin framleiðsla á t.d. skotvestum úr þessu efni og hjólbarðar sem ætlað er að standast ströngustu kröfur, eru styrktir með þvi. Vegna þols og styrkleika miðað við léttleika ryður kevlar sér nú einnig til rúms á mörgum öðrum sviðum, s.s. i eldflauga- og flugvélaiðnaðinum, en efnið þolir mjög vel hita og kulda og frá 180° hita niður í -e-196° missir það ekkert af styrkleika sínum eða upphaflegu eiginleikum. Annar kostur þessa gerviefnis fram yfir þau sem fyrir eru á markaðinum varðar öryggi þeirra sem með því vinna. Þegar kevlar slitnar vegna átaks, þa gerist það ekki allt í einu, eða með sprengiafli. heldur hægt og rólega og er ástæðan fyrir því sú, að kevlar teygist mjög lítið áður en það slitnar, eða aðeins 2,4—4%. Nylon teygist allt að 19% áður en það hrekkur í sundur og allir sem haft hafa það undir höndum við slikar aðstæður kannast vel við hið hættulega ástand sem skapast þegar það eða Mynd 1. Plaslkápan svo og polyasterfléttan eru til að halda kevlarmergnum saman og verja Itann hnjaski. Kevlar tekur ekki t stS vatn. 474 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.