Ægir - 01.09.1981, Qupperneq 11
önnur skyld gerviefni slitna vegna mikillar þenslu
°g endarnir þjóta, líkt og skotið sé úr byssu út í
'oftið, enda hafa margir átt um sárt að binda sem
fyrir þeim hafa orðið.
Þar sem kevlar er ofinn þráður, þá er auðveld-
'ega hægt að framleiða kaðla og hverskonar
strengi með þar til gerðum spunavélum, og útkom-
an verður u.þ.b. tvisvar sinnum sterkari þráður en
jafngildur þráður úr nylon eða polyaster.
Vegna hinna mörgu afgerandi eiginleika sinna,
er kevlar að áliti fjölda framleiðenda í vefnaðar-
'ðnaðinum ein merkasta uppgötvunin í flokki
þráða úr gerviefni frá því er nylonið kom fram á
sjónarsviðið. 16 ár eru síðan vísindarmenn hjá
DuPont fundu upp kevlar, þó fyrst nú sé það að
koma á markaðinn og ryðja sér til rúms. Fram-
'eidd eru tvö afbrigði, þ.e. kevlar 29 sem aðallega
er notað í þræði og kaðla, en hitt er kevlar 49, sem
frekar er ætlað til að styrkja bátsskrokka, flug-
vélar, eldflaugar o.s.frv. Þar sem kevlar er sem
stendur dýrara en stál eða trefjagler, er núverandi
uotkun þess helst á þeim sviðum þar sem það hefur
í för með sér orkusparnað og lægri reksturs-
kostnað, eykur styrkleika og öryggi, og þar sem
mikilvægt er að hafa efnið létt, en þó sterkt. T.d.
var 9 m eftirlitsbátur byggður úr kevlar og gerðar
samanburðartilraunir á honum og samskonar bát
úr trefjagleri. Eigin þyngd kevlar bátsins varð 10°7o
minni en trefjaglersbátsins og í tilraunaferðum
gekk hann 1,7 sjómílu hraðar og eyddi aðeins
minni olíu þegar báðir voru á fullri ferð.
Ennþá er kevlar snöggtum dýrara en önnur
gerviefni, eins og t.d. polyaster, en þeir sem voru á
togurunum síðari hluta fimmta áratugsins muna
efiaust þá tíð er 1. stýrimaður geymdi undir sér í
kojunni nylonrúllurnar, lá á þeim sem ormur á
gulli, og fyrir náð fékkst að vinda í nokkrar nálar í
einu niðri í klefa hjá honum, sem síðan var notað í
kolllinumöskvana einvörðungu. Þá þótti nylonið
það dýrt að óhugsandi var að nota það nema til
þessa eina hlutverks um borð i togara.
í sölumálum sínum hefur DuPont þá reglu að
engir umboðsmenn starfa fyrir þá, en þeir sem
hafa áhuga fyrir að framleiða úr efnum frá þeim,
Mynd B
Toppurinn á trollinu.
^ynd 2 A. Sami möskvi og á mynd B.
ÆGIR — 475