Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1981, Síða 11

Ægir - 01.09.1981, Síða 11
önnur skyld gerviefni slitna vegna mikillar þenslu °g endarnir þjóta, líkt og skotið sé úr byssu út í 'oftið, enda hafa margir átt um sárt að binda sem fyrir þeim hafa orðið. Þar sem kevlar er ofinn þráður, þá er auðveld- 'ega hægt að framleiða kaðla og hverskonar strengi með þar til gerðum spunavélum, og útkom- an verður u.þ.b. tvisvar sinnum sterkari þráður en jafngildur þráður úr nylon eða polyaster. Vegna hinna mörgu afgerandi eiginleika sinna, er kevlar að áliti fjölda framleiðenda í vefnaðar- 'ðnaðinum ein merkasta uppgötvunin í flokki þráða úr gerviefni frá því er nylonið kom fram á sjónarsviðið. 16 ár eru síðan vísindarmenn hjá DuPont fundu upp kevlar, þó fyrst nú sé það að koma á markaðinn og ryðja sér til rúms. Fram- 'eidd eru tvö afbrigði, þ.e. kevlar 29 sem aðallega er notað í þræði og kaðla, en hitt er kevlar 49, sem frekar er ætlað til að styrkja bátsskrokka, flug- vélar, eldflaugar o.s.frv. Þar sem kevlar er sem stendur dýrara en stál eða trefjagler, er núverandi uotkun þess helst á þeim sviðum þar sem það hefur í för með sér orkusparnað og lægri reksturs- kostnað, eykur styrkleika og öryggi, og þar sem mikilvægt er að hafa efnið létt, en þó sterkt. T.d. var 9 m eftirlitsbátur byggður úr kevlar og gerðar samanburðartilraunir á honum og samskonar bát úr trefjagleri. Eigin þyngd kevlar bátsins varð 10°7o minni en trefjaglersbátsins og í tilraunaferðum gekk hann 1,7 sjómílu hraðar og eyddi aðeins minni olíu þegar báðir voru á fullri ferð. Ennþá er kevlar snöggtum dýrara en önnur gerviefni, eins og t.d. polyaster, en þeir sem voru á togurunum síðari hluta fimmta áratugsins muna efiaust þá tíð er 1. stýrimaður geymdi undir sér í kojunni nylonrúllurnar, lá á þeim sem ormur á gulli, og fyrir náð fékkst að vinda í nokkrar nálar í einu niðri í klefa hjá honum, sem síðan var notað í kolllinumöskvana einvörðungu. Þá þótti nylonið það dýrt að óhugsandi var að nota það nema til þessa eina hlutverks um borð i togara. í sölumálum sínum hefur DuPont þá reglu að engir umboðsmenn starfa fyrir þá, en þeir sem hafa áhuga fyrir að framleiða úr efnum frá þeim, Mynd B Toppurinn á trollinu. ^ynd 2 A. Sami möskvi og á mynd B. ÆGIR — 475

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.