Ægir - 01.09.1981, Page 12
Mynd 3 a. Smáriðinn þætti belgurinn í trolli dönsku skítfiskar-
anna, sem Norðursjórinn er sópaður með allt árið, ef nota ætti
eitthvað slíkl á Islandsmiðum. Vceri nœr að kalla þelta teppi en
riðil.
Mynd 3 b. Danskur tvílembingaskítfiskveiðari undirbýr köstun.
Veiðarfærið er kevlartroll eins og lýst er I greininni. Línurnar
sem liggja í sjóinn eru fremsti hluti skversins og úr kevlar. 6
blaðamenn og Ijósmyndarar frá alþjóðlegum fiskveiðitímarit-
um fylgdust grattnt með fyrirbrigðinu og handbfögðunum.
kaupa beint frá fyrirtækinu sjálfu og framleiða
síðan það sem þeir vilja.
,,Roblon“-fyrirtækið í Frederikshavn, í Dan-
mörku, sem er leiðandi og eitt stærsta sinnar teg-
undar i Evrópu í framleiðslu á köðlum, linum og
garni fyrir veiðarfæri, en útibú frá þeim framleiðir
spunavélar, hóf fyrir nokkrum árum tilraunir með
kevlar.
Þessar tilraunir þeirra leiddu til þess að hafin var
framleiðsla á hinum svokölluðu ,,Combiropes“.
Mergurinn í þessum köðlum og línum er úr kevlar,
476 — ÆGIR
Mynd 3 c. Trollið skverað fyrir köstun.
en utanum hann er steyptur þunnur plasthólkur og
þar utan um er fléttað einfalt lag af polyaster og
framleiðir fyrirtækið þá á bilinu frá 6 mm upp í 30
mm i þvermál, og hafa þeir átaksþol frá 900 kg til
20 tonn. (Mynd 1.) Styrkleiki þessara lína eða
kaðla er u.þ.b. sá sami og styrkleiki vira af sama
sverleika. ,,Roblon“ hefur nú einnig hafið fram-
leiðslu á ,,Combitwine“, sem er garn úr kevlar.
í samvinnu við ,,Roblon“ tók netagerðin
,,Dantrawl“ i Hirsthals að þreifa sig áfram með
uppsetningu á flottrolli þar sem notað er kevlar i
kjaftlínurnar, þ.e. fiskilínur, höfuðlínur og hliðar-
línur, svo og fremstu möskvana. (Mynd 2). Heild-
arþyngd trollsins minnkaði um allt að 10°7o og
staðhæfa danskir fiskiskipstjórar sem reynt hafa
þetta nýja troll að þeir geti togað allt að 30°7o
hraðar með því en með öðrum trollum af sam-
svarandi stærð, án þess að olíueyðslan aukist. A
venjulegri togferð varð oliusparnaðurinn veru-
legur. Við veiðarnar kom fram að ef sami hestafla'
fjöldi var notaður þegar hefðbundið troll og kevl-
artroll var dregið, var togferðin með hefðbundna
trollinu 2,7 sjómílur en það síðarnefnda dróst á 3,3
sjómilna hraða. í kevlarflottrolli ,,Dantrawls“ erU
línurnar allt að helmingi grennri en hægt er að
komast af með úr öðrum gerviefnum. A
reynsluveiðunum með þetta nýja troll þótti það að
öllu leyti þægilegra í meðförum, vegna þess hve
léttar, mátulega stífar og meðfærilegar
kevlarlinurnar eru og eins að línurnar togna ekkert
sem nemur, þannig að trollið heldur alltaf lögun
sinni þrátt fyrir langa notkun. (Myndir 3).
,,Dantrawl“ netagerðin er mörgum íslendingu111
að góðu kunn, en hún hefur m.a. sett upp nokkui
kolmunnatroll fyrir okkur.